Aftur í námskeið

Vellíðan starfsfólks

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Vaxandi meðvitund er á vinnustöðum samtímans um mikilvægi þess að huga að vellíðan starfsfólks.

Á námskeiðinu verður fjallað um, frá sjónarhóli starfsfólks og vinnustaða, hvað felst í vellíðan starfsfólks. Skoðaðir verða helstu þættir sem þarf að huga að til að starfsfólki líði vel í starfi með sérstaka áherslu á jafnvægi og samþættingu vinnu og einkalífs og sveigjanleika í starfi, mikilvægi félagslegra tengsla á vinnustöðum og hlutverk leiðtoga á vinnustöðum. Rýnt verður í af hverju það skiptir máli að huga að vellíðan á vinnustöðum og ábyrgð stjórnenda og starfsfólks í því samhengi.

Leitað verður svara við spurningum á borð við: Hvað er vellíðan í starfi, hvernig stuðlum við að vellíðan og hvað getur starfsfólkið sjálft gert til að vinna að eigin vellíðan? Hvað þurfa stjórnendur að vera meðvitaðir um og hvaða áhrif hafa vinnustaðir á líðan starfsfólks?

Efnistök

Að þekkja helstu þætti sem stuðla að vellíðan í vinnu.
Að þekkja leiðir til að vinna að eigin vellíðan í vinnu og/eða samstarfsfólks.

Hæfniviðmið

Að þekkja helstu þætti sem stuðla að vellíðan í vinnu.
Að þekkja leiðir til að vinna að eigin vellíðan í vinnu og/eða samstarfsfólks.

Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður
Gott að vita

Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst. 

Samstarfsaðili
Endurmenntun Háskóla Íslands
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Streymi
Tími
  • 26. september 2024 klukkan 09:00-12:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll sem hafa áhuga á líðan á vinnustöðum, bæði stjórnendur sem eru með mannaforráð og þau sem vilja huga að eigin vellíðan.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
26.09.2024Vellíðan starfsfólks09:00Þóra Þorgeirsdóttir