Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á þessu námskeiði byggir þú ofan á grunninn í Excel. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.
Á þessu námskeiði lærir þú að nota flóknari gagnavinnsluföll (e. functions), síur og gagnaprufun. Þú kynnist mikilvægustu gagnavinnsluföllunum, snúningstöflum (e. Pivot), lærir á uppflettiföll, leitar- og rökfræðiföll. Þú lærir að sækja gögn í gagnavinnslukerfi og hvernig á að raða þeim og sía (e. Data Validation) ásamt því að læra á tengingar milli skjala og innan vinnubókar, verndun og læsingu gagna, fjölvavinnslu (Macros) og gerð þeirra og fjármálaföll.
Að geta notfært sér ýmiss gagnavinnsluföll.
Að geta notað gagnavinnslukerfi á nytsamlegan hátt.
Kennarinn veitir þér aðgang að rafrænu netskólakerfi. Þar skoðar þú námsefnið og leysir verkefni rafrænt. Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu. Þú hefur aðgang að námsefninu allt skólaárið.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða