Aftur í námskeið

Gervigreind fyrir venjulegt fólk

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Vilt þú læra að skrifa skipanir fyrir ChatGPT sem skila árangri? Finnst þér þú stundum þurfa hjálp við að móta hugmyndir og leysa sköpunargáfuna úr læðingi? Viltu hætta að eyða tíma í verkefni sem þú gætir látið tölvuna sjá um?

Á þessu þriggja tíma námskeiði lærir þú að skrifa áhrifaríkar skipanir fyrir ChatGPT og spara dýrmætan tíma. Kenndar verða aðferðir við að móta skipanir á þann hátt að ChatGPT skili nákvæmlega því sem þú vilt að það skili, það sem kallast á ensku prompt engineering.

Efnistök
Að geta geta skrifað áhrifaríkar og skilvirkar skipanir í ChatGPT
Hæfniviðmið
Að geta geta skrifað áhrifaríkar og skilvirkar skipanir í ChatGPT
Fyrirkomulag

Fyrirlestur og æfingar í tíma. Mikilvægt er að nemendur hafi keypt sér aðgang að ChatGPT 4 áður en námskeiðið hefst.

Ef þátttakandi er þegar skráður með aðgang hjá Opna Háskólanum í HR mun viðkomandi fá póst frá Starfsmennt til að skrá sig á námskeiðið beint hjá þeim en með greiðsluupplýsingum Starfsmenntar.

Gott að vita

Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Opna Háskólanum í HR.

Samstarfsaðili
Opni Háskólinn í Háskólanum í Reykjavík
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Staðnám
Tími
  • 18. október 2024 klukkan 09:00-12:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námskeiðið er ætlað hinum almenna notanda og er grunnnámskeið þar sem aðal áherslan er á að móta skipanir fyrir ChatGPT.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
18.10.2024Gervigreind fyrir venjulegt fólk09:00Grímur Sæmundsson