Hvammstangi - Að setja mörk

Í krefjandi starfsumhverfi, jafnt sem í lífinu almennt getur verið mikilvægt að kunna að setja mörk af ábyrgð, vinsemd og festu.
Við gegnum jafnvel mörgum hlutverkum og þurfum að skilja á milli, til dæmis sem starfsmenn, stjórnendur, vinnufélagar, kunningjar, ættingjar, einstaklingar með fjölskyldu og frítíma og ekki síst sem manneskjur sem þurfa hlúa að sjálfum sér.
Farið er í mikilvægi þess að byrja á að þekkja sínar eigin tilhneigingar og vita hvaða mörk þarf helst að setja til að geta byrjað að æfa sig í að setja þau.

Gefin eru ráð í samskiptatækni, til dæmis varðandi það að hafa áhrif á tímasetningar, stað og stund, svo sem aðstöðu og andrými til að sinna
erindum.

Lögð er áhersla á að láta ekki stýrast af framkomu, ójafnvægi eða óskipulagi annarra og að kunna að segja “nei” en að hafa samskipti skýr og vinsamleg.

Hæfniviðmið

Leitast er svara við spurningum s.s:

Hvenær er líklegast að reyni á mörkin?

Er það í ákveðnum aðstæðum?

Eru ákveðnir einstaklingar sem gjarnan taka af okkur stjórnina, orðið eða skipulagið?

Fyrirkomulag

Fræðsla, umræður, sjálfsskoðun og persónuleg markmið.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Þriðjud. 10. mars kl. 12:30 - 16:30
  • Lengd
    4 klst.
  • Umsjón
    Steinunn Inga Stefánsdóttir frá Starfsleikni www.starfsleikni.is
  • Staðsetning
    Farskólinn - Námsverið á Hvammstanga, Höfðabraut 6, 530 Hvammstangi.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.Aðrir verða að skrá sig hjá Farskólanum (Miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra).
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
10.03.2020Að setja mörk12:3016:30Steinunn Inga Stefánsdóttir frá Starfsleikni www.starfsleikni.is