Sáttamiðlun

Á námskeiðinu er fjallað um eðli sáttamiðlunar og hugmyndarfræðin að baki sáttamiðlunar er kynnt. Skoðað verður hvað hamlar árangursríkri sáttamiðlun og kynntar verða aðferðir sem beita má við ólíkar aðstæður til að auka líkur á að sátt náist.
Það er lykilatriði fyrir stjórnendur að geta tekist á við ágreining og tekið forystu í að leita sátta milli deilandi aðila.

Fjallað verður um eðli sáttamiðlunar og þekktar kenningar um sáttamiðlun verða kynntar. Skoðað verður af hverju fólk sýnir viðspyrnu þegar leitað er sátta og hugað er að því ferli sem starfsmenn upplifa þegar áreiningur á sér stað. Kynntar verða aðferðir til að meta og greina hagsmunaaðila og áhættur sem geta myndast á milli ólíkra aðila. Skoðað verður hvernig nýta má niðurstöður slíkra greininga til að velja nálgun sáttamiðlunar svo líklegra sé að áformuð sátt gangi eftir.

Unnið verður með raunhæf dæmi til að dýpka skilning þátttakenda á þeim aðferðum sem fjallað verður um á námskeiðinu.

Á námskeiðinu er fjallað um:
• Eðli ágreinings.
• Kenningar í sáttamiðlun.
• Hlutverk sáttamanns í ferlinu.
• Verkfæri sáttamannsins.
• Aðferðir.
• Skyldur og siðareglur.

Ávinningur þinn:
• Skilningur á ágreiningi og deilum.
• Þekking á kenningum sáttamiðlunar.
• Aukinn skilningur á hlutverki sáttamanns.
• Þekking á verkfærum sáttamanna.
• Skilningur á aðferðum sáttamanna.
• Yfirsýn yfir skyldur og siðareglur sáttamanna.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Fimmtudagurinn 27. febrúar kl. 08:30 - 12:30.
  • Lengd
    4 klst.
  • Umsjón
    Sigþrúður Erla Arnardóttir er sálfræðingur. Hún starfar sem stjórnandi hjá Reykjavíkurborg. Auk meistaranáms í sálfræði hefur Sigþrúður lokið námi í sáttamiðlun, Applied Control Theory, Restitution sem og tveggja ára sérnámi í hugrænni atferlismeðferð.
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 107 Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Stjórnendur og aðrir sem vilja efla þekkingu sína og færni á sviði sáttamiðlunar.
  • Gott að vita
    Aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu. Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía Guðný Santacroce
    soffia@smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
27.02.2020Sáttamiðlun08:3012:30Sigþrúður Erla Arnardóttir