Jafnlaunastaðall: IV. Starfaflokkun - Fjarnámskeið
Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017 með breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Samkvæmt lögunum skal jafnlaunavottun byggjast á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85.
Með innleiðingu hans geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.
Áreiðanleg og málefnalega rökstudd aðferð við flokkun starfa er lykilatriði í því að vel takist að ná markmiðum um launajafnrétti. Fyrirtæki og stofnanir sem vilja fá jafnlaunavottun á grundvelli staðalsins verða að ákvarða þau viðmið sem lögð skulu til grundvallar flokkun starfa og í framhaldi af því að flokka öll störf samkvæmt þeim.
Á námskeiðinu er fjallað almennt um hugmyndafræðina að baki flokkun starfa, viðmiða og ólíkar aðferðir við starfaflokkun. Einnig er farið yfir verklag og ferli starfaflokkunar skref fyrir skref og hvað felst í þeirri vinnu. Þátttakendum er leiðbeint um flokkun starfa og fá þeir aðgang að verkfærum og líkönum sem þeir geta nýtt á sínum vinnustað.
Aðrar upplýsingar:
Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að staðlinum ÍST85:2012, sem má nálgast á stadlar.is
Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundakerfið ZOOM.
Þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu, vefmyndavél, hljóðnema og góða ADSL eða ljósnet/leiðara tengingu. Mælt er með að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.
Föstudaginn 1. nóv. kl 13:00 fer fram prufa á búnaði og ZOOM kerfinu fyrir þá þátttakendur sem það vilja.
Slóð námskeiðsins verður sent á það netfang sem þátttakandi hefur gefið upp við skráningu.
Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð.
Skráningu (fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar) lýkur 18. okt. kl.10:00.
Hæfniviðmið
Að öðlast skilning á starfaflokkun, tilgangi hennar og ólíkum aðferðum.
Að þekkja ferli starfaflokkunar og verklag.
Að geta framkvæmt starfaflokkun, s.s. skilgreint viðmið og flokkað störf á grundvelli þeirra.
Að fá tækifæri til að miðla og læra af öðrum í sömu sporum varðandi flokkun starfa.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð.
Helstu upplýsingar
- TímiMánudaginn 4. nóv. kl. 13:00 - 16:00.
- Lengd3 klst.
- UmsjónGuðný Einarsdóttir er sérfræðingur hjá kjara- og mannauðssýslu ríkisins í fjármála-og efnhagsráðuneytinu.
- StaðsetningFJARNÁMSKEIÐ
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er ætlað forstöðumönnum, mannauðsstjórum, gæðastjórum og öðrum þeim sem ætlað er að stýra eða gegna ábyrgðarhlutverki við innleiðingu .
- Gott að vitaStarfsmennt greiðir námskeiðið fyrir aðildarfélaga. Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundakerfið ZOOM. Þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu, vefmyndavél, hljóðnema og góða ADSL eða ljósnet/leiðara tengingu. Mælt er með að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.
- MatÞátttaka.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(at)smennt.is550 0060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 04.11.2019 | Á námskeiðinu er fjallað um: | 13:00 | 16:00 | Guðný Einarsdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. |
| 04.11.2019 | Ferli við flokkun starfa og verklag | 13:01 | 13:01 | Guðný Norðdahl Einarsdóttir |
| 04.11.2019 | Aðferðir starfaflokkunar og val á aðferðafræði. | 13:02 | 13:02 | Guðný Norðdahl Einarsdóttir |
| 04.11.2019 | Ákvörðun og skilgreiningu viðmiða sem lögð eru til grundvallar flokkunar starfa. | 13:03 | 13:03 | Guðný Norðdahl Einarsdóttir |
| 04.11.2019 | Flokkun starfa samkvæmt viðmiðum. − Prófun á starfaflokkun og tenging við launaákvörðun. | 13:04 | 13:04 | Guðný Norðdahl Einarsdóttir |
| 04.11.2019 | Verkfæri og líkön sem nýta má til flokkunar starfa. | 13:05 | 13:05 | Guðný Norðdahl Einarsdóttir |
| 04.11.2019 | Ávinning starfaflokkunar og helstu hindranir. | 13:06 | 13:06 | Guðný Norðdahl Einarsdóttir |