Teymisvinna með Office 365
Í þessari vinnustofu er lögð áhersla á það hvernig nýta megi lausnir í Office 365 til árangurs í teymisvinnu. Farið verður ítarlega í nýjustu möguleika í Microsoft Outlook, Teams, Planner, Delve og OneDrive og hvernig nýta megi Office pakkann (m.a. Word, Excel, PowerPoint) í því samhengi. Lögð er sérstök áhersla á nýjungar og praktíska nálgun í verkefnavinnunni á því hvernig best er að vinna með lausnina, í teymisvinnu, skipulagi verkefna og samstarfi innanhúss og utan.
Umsækendur sækja bæði um hjá Starfsmennt og hjá Promennt.
Hæfniviðmið
Að geta nýtt Microsoft Office 365 lausnir í teymisvinnu.
Að geta skilið hvað er innifalið í Office 365 lausnarsvítunni.
Að geta skilið samvinnu einstakra lausna og einnig muninn á þeim.
Að geta skilið hvernig best er að vinna með Office 365 svítuna.
Að geta sett upp vinnusvæði á OneDrive, stillt og deilt upplýsingum í takt við þarfir.
Að geta nýtt Teams í samvinnu við aðrar lausnir og sett upp verkefni í Planner.
Að geta sett upp sitt svæði á Delve, skilið leit og samþættingu.
Að geta skilið hvernig hægt er að nota Outlook, Word, Excel, PowerPoint, OneNote, Teams, Planner, Delve og OneDrive til árangurs í teymisvinnu og samstarfi
Fyrirkomulag
Kennsla fer fram í formi fyrirlesturs ásamt því að mikil áhersla er lögð á verkefnavinnu þar sem þátttakendur vinna með leiðbeiningu frá kennara.Helstu upplýsingar
- Tími6. - 7. febrúar 2020 frá kl. 9:00-12:00.
- Lengd6 klst.
- UmsjónPrómennt
- StaðsetningSkeifan 11b, 108 Reykjavík.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurVinnustofan er sérstaklega gagnleg öllum sem nota eða hyggjast nota Office 365 í starfi og vilja kynna sér hina ýmsu möguleika sem þessi verkfæri bjóða upp á í samvinnu og teymisvinnu.
- Gott að vitaVið viljum vekja sérstaklega athygli á að hægt er að stunda bæði staðnám og fjarnám á sama námskeiðinu, þ.e. mæta stundum á staðinn og stundum vera á línunni, allt eftir því hvað hentar hverjum nemanda.
- MatEkki eru lögð fyrir formleg próf en leiðbeinandi fer vel yfir það með þátttakendum í lokin sem hefur áunnist á námskeiðinu.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
06.02.2020 | Teymisvinna með Office 365 - Vinnustofa | 09:00 | 12:00 | |
07.02.2020 | Teymisvinna með Office 365 | 09:00 | 12:00 |