St.Rv. - Gott að vita - Hjólað allt árið - hvað þarf til

Námskeiðið hefst á fyrirlestri um samgönguhjólreiðar allt árið og eftir hann er farið í léttar hjólaviðgerðir. Lögð eru til öll verkfæri og búnað fyrir viðgerðakennsluna. Kenndar eru dekkjaviðgerðir og einfalt viðhald á bremsum og stillingar á gírum. Síðasta klukkutímann má gera ráð fyrir að þátttakendur skipti yfir á vetrardekk á eigin hjólum undir leiðsögn.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi og vinni með sín eigin reiðhjól.

Nánari upplýsingar veittar hjá Framvegis á helga@framvegis.is eða í síma 581-1900, en Framvegis sér um skipulagningu námskeiðanna. 

Hæfniviðmið

Að þátttakendur verði færari í að hjóla allt árið.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og verkleg kennsla.



Helstu upplýsingar

  • Tími
    11. okt. kl: 17:00 - 21:00.
  • Lengd
    4 klst.
  • Umsjón
    Framvegis.
  • Staðsetning
    Grettisgötu 89, 1.hæð.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðildarfélagar St.Rv. og SFR.
  • Gott að vita
    Aðeins fyrir aðildarfélaga St.Rv. og SFR.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Helga Tryggvadóttir
    helga(hjá)framvegis.is
    581 1900

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
11.10.2018Hjólað allt árið - hvað þarf til17:0021:00Árni Davíðsson