Mannlegi millistjórnandinn - AKUREYRI

6. feb.: Vinnustofa um orkustjórnun – 4 klst

Farið er yfir hvernig stjórandinn getur nýtt orkustjórnun til að auka gæði vinnunnar, afköst og framlegð og um leið aukið starfsgleði og stuðlað að auknu heilbrigði sínu og sinna starfsmanna. Farið er yfir helstu þætti orkustjórnunar og hvernig er hægt að nýta þá til að auka daglega orku.

  • Líkamlegi þátturinn. Grunnurinn að góðri orkustjórnun. Hreyfing, líkamsþjálfun, næring, svefn, hvíld.
  • Hugræni þátturinn. Skipulag, einbeiting, viðbrögð við áreiti.- Tilfinningalegi þátturinn. Stjórna eigin tilfinningum, yfirvegun í samskiptum.
  • Tilgangurinn. Markmið, hugsjónir.
  • Venjur og breytingar. Stutt kynning á því hvernig maður tekur út slæma ávana og innleiðir góðar orkuvenjur í staðinn.

27. feb.: Stjórnun fólks: mannauðsstjórnun– 4 klst

Önnur lotan fjallar um hlutverk millistjórnandans og dagleg viðfangsefni hans í tengslum við stjórnun fólks.

Kynntar og æfðar eru hagnýtar leiðir sem stjórnendur geta nýtt til að virkja og hvetja starfsmenn sína auk þess að efla þá við að taka á erfiðum starfsmannamálum.

  • Millistjórnendur, hlutverk þeirra og áhrif
  • Móttaka nýliða
  • Endurgjöf og hvatning starfsmanna
  • Árangursríkar leiðir til að að takast á við erfið starfsmannamál s.s. samskiptavanda, agamál og óánægju.Áhrif tilfinninga og viðbrögð.

20. mars: Árangursríkari samskipti - 4 klst 

Farið er yfir ábyrgð einstaklinga þegar kemur að samskiptum og mikilvægi þess að vera meðvitaður um eigin samskiptatækni. Farið yfir mikilvægi sjálfstrausts þegar kemur að stjórnun og samskiptum almennt og unnið með sjálfstraust þátttakenda og sjálfsuppbyggingu.

  • Hver er munurinn á óákveðnum, ákveðnum og ágengum stjórnanda og hver er líklegastur til að ná sem bestum árangri.
  • Mikilvægi þess að vera samkvæmur sjálfum sér og láta ekki persónulegt líf bitna á starfsmönnum eða vinnustaðnum.
  • Hvernig lítum við á mistök? Mikilvægi þess að viðurkenna mistök og draga lærdóm af þeim.
  • Gagnsemi hróss og jákvæðrar uppbyggingar.
  • Einelti og kynferðisleg áreitini á vinnustöðum og birtingarform

Þátttakendur taka létta áhugasviðsgreiningu og niðurstöðurnar nýttar til að skoða og vekja athygli á margbreytileika hópsins, styrkleikum og veikleikum og hvernig við vinnum sem best saman.

10 apríl: Leiðtogahlutverkið og þjónandi forysta – 4 klst

Fjórða og síðasta lotan fjallar um leiðtogann og mismunandi leiðtogastíla. Áhersla er lögð á þjónandi forystu.

  • Framsýni, mótun og miðlun framtíðarsýnar.
  • Þjónustuhlutverk stjórnandans
  • Hvernig vinnum við starfsfólk á okkar band og löðum fram það besta í hverjum starfsmanni?
  • Virk hlustun og aðgerðir sem stuðla að eflingu starfsfólks

Eftirfylgni:

Þátttakendum er boðið að sækja markþjálfun í framhaldi af námskeiðinu.

ATH. Starfsmennt greiðir einu sinni fyrir hvern félagsmann á þetta námskeið.

Hæfniviðmið

Markmið námskeiðisins er að styrkja nýja stjórnendur og millistjórnendur í störfum sínum.

Fyrirkomulag

Námið samanstendur af fjórum hálfsdags vinnustofum og einstaklingsviðtölum. Vinnustofurnar eru byggðar upp af fyrirlestrum og hagnýtum æfingum.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    6. feb – Orkustjórnun 27. febrúar – Samskipti og lausn ágreinings 20. mars – Stjórnun mannauðs 10. apríl – Leiðtoginn og breytingastjórnun.
  • Lengd
    16 klst.
  • Umsjón
    Ingunn og Gyða.
  • Staðsetning
    SÍMEY - Þórsstíg 4, 600 Akureyri.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Stjórnendur og millistjórnendur.
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig SÍMEY.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og verkefnavinna.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia@smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
06.02.2019Mannlegi millistjórnandinn.13:0017:00Ráðgjafar Hagvangs.
19.03.2019Mannauðsstjórnun13:0017:00Ráðgjafar Hagvangs
09.04.2019Samskipti13:0017:00Ráðgjafar Hagvangs
30.04.2019Leiðtogahlutverkið13:0017:00Ráðgjafar Hagvangs