Excel töflureiknir, grunnur - Vefnámskeið
Hér kynnum við helstu grunnverkfæri Excel og áttum okkur á notendaviðmótinu.
Farið er yfir grunn í uppsetningum formúla, s.s. summu, frádrátt, marföldun og deilingu. Við skoðum einnig vísun í reiti og skjöl og útlitsmótun gagna.
Sérstaklega verður fjallað um uppsetningu og mótun á texta, töflum og myndritum í Excel, uppsetningu á haus og fæti og prentun skjala.
Námskeiðið er vefnámskeið.
Þátttakendur sækja svo alla aðstoð við námið til kennarans, Bjartmars Þórs Huldusonar, í gegnum tölvupóst og þjónustusíma sem er opinn frá kl. 10.00 - 20.00 alla virka daga.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta nám er þér velkomið að hafa samband við Bjartmar Þór Hulduson í síma 788 8805 eða í netfangið kennari(at)nemandi.is.
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Tölvuskólann Nemandi.is.
Hæfniviðmið
Að byggja upp góða grunnfærni í Excel töflureikni.
Fyrirkomulag
Vefnámskeið. Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt.
Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu.
Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið. Ef upp koma tafir hjá nemendum (varðandi skil á verkefnum t.d) er velkomið að hafa samband við kennara og taka upp þráðinn, ef það er gert innan árs frá skráningu.
Nemendur sækja alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum tölvupóst eða þjónustusíma 788 8805 sem er opinn 10-20 virka daga.
Helstu upplýsingar
- Tími28. jan. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur.
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
- StaðsetningVefnámskeið.
- TegundFjarnám
- Verð33.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAllir sem vilja geta nýtt Excel á markvissan hátt.
- Gott að vitaVefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Aðstoð með tölvupósti og í þjónustusíma kl. 10-20 virka daga.
- MatVerkefnaskil.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia(hjá)smennt.is5500060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
|---|---|---|
| 28.01.2020 | Grunnur notendaviðmóts Excel skoðaður og helstu verkfæri kynnt. | Bjartmar Þór Hulduson |
| 03.02.2020 | Framkvæmd útreikninga í Excel. Uppsetningar á einföldum formúlum. Beinar og afstæðar tilvísanir. | Bjartmar Þór Hulduson |
| 10.02.2020 | Mótun gagna. Töflur og uppsetning þeirra. Uppsetning, mótun og virkni myndrita. | Bjartmar Þór Hulduson |