Jafnlaunastaðall: II. Gæðastjórnun og skjölun

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017 með breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Samkvæmt lögunum skal jafnlaunavottun byggjast á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85.

Með innleiðingu hans geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.
Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð.

Námskeiðið er hluti af undirbúningsferli vegna innleiðingar jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. 

Þess er krafist í staðlinum að fyrirtæki og stofnanir skilgreini og skjalfesti jafnlaunakerfi sitt og jafnlaunastefnu. Lögð er áhersla á skráningu og rekjanleika þeirra upplýsinga sem þörf er á til að staðfesta launajafnrétti kynja við vottun. Það er mikilvægt að verklag og aðferðir gefi greinargóða mynd af launamyndun og að hægt sé að vísa í skjalfest gögn þessu til stuðnings.

Á námskeiðinu er fjallað almennt um gæðastjórnun í tengslum við ávinning af innleiðingu skjalastjórnar á vinnustað. Fjallað er stuttlega um uppbyggingu gæða- og skjalastjórnunarkerfa og lykilatriði staðla og reglugerða. Farið er yfir kröfur jafnlaunastaðalsins og skráningu gagna í rafræn skjalastjórnunarkerfi.


Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að búa yfir nauðsynlegri þekkingu til að hefja vinnu við innleiðingu jafnlaunastaðalsins á sínum vinnustað.

Hæfniviðmið

Að þekkja kröfur jafnlaunastaðalsins um skjalfestingu.

Að öðlast skilning á samspili gæðastjórnunar og skjalastjórnar.

Að hljóta innsýn í almennar kröfur um skjalastjórnun, helstu löggjöf, staðla og stefnur.

Að öðlast grunnfærni í að skjalfesta jafnlaunastefnu og jafnlaunakerfi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð.


1) Jafnlaunastaðall: I. Kynning á jafnlaunastaðli og inngangur skráning hér
Haldið: Mán. 17. sept. kl. 13:00 - 16:00
Lokað fyrir skráningar (fyrir aðildarfélaga): mánud. 3. sept. kl. 10:00

2) Jafnlaunastaðall: II. Gæðastjórnun og skjölun - skráning hér
Haldið: Mán. 24. sept. kl. 13:00 - 16:00
Lokað fyrir skráningar (fyrir aðildarfélaga): fös. 7. sep. kl. 10:00.

3) Jafnlaunastaðall: III. Gerð verklagsreglna og annarra skjala í gæðakerfum - skráning hér
Haldið: Mán. 1. okt. kl. 13:00 - 16:00
Lokað fyrir skráningar (fyrir aðildarfélaga): fös. 14. sept. kl.10:00

4) Jafnlaunastaðall: IV. Starfaflokkun - skráning hér
Haldið: Mán. 8. okt. kl. 13:00 - 16:00
Lokað fyrir skráningar (fyrir aðildarfélaga): fös. 21. sept. kl. 10:00

5) Jafnlaunastaðall: V. Launagreining - skráning hér
Haldið: Mán. 15. okt. kl. 13:00 - 16:00
Lokað fyrir skráningar (fyrir aðildarfélaga): fös. 28. sept. kl. 10:00

Aðrir áhugasamir geta sótt um beint hjá EHÍ hér 


Helstu upplýsingar

  • Tími
    Mánudaginn 24.sept. kl. 13:00 - 16:00.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Ragna Haraldsdóttir, aðjúnkt við Félags- og mannvísindadeild HÍ. Gestakennari verður kynntur síðar.
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 107 Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað forstöðumönnum, mannauðsstjórum, gæðastjórum og öðrum þeim sem ætlað er að stýra eða gegna ábyrgðarhlutverki við innleiðingu .
  • Gott að vita
    Aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    smennt(at)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
24.09.2018Á námskeiðinu er fjallað um:13:0016:00Ragna Haraldsdóttir, aðjúnkt við Félags- og mannvísindadeild HÍ. Gestakennari verður kynntur síðar.
24.09.2018Samspil skjalastjórnar og gæðastjórnunar.13:0113:01Ragna Kemp Haraldsdóttir
24.09.2018Staðla- og regluumhverfi skjalastjórnar.13:0213:02Ragna Kemp Haraldsdóttir
24.09.2018Skjalfesting jafnlaunastefnu og jafnlaunakerfa.13:0313:03Ragna Kemp Haraldsdóttir
24.09.2018Kröfur og verklagsreglur jafnlaunastaðalsins.13:0413:04Ragna Kemp Haraldsdóttir
24.09.2018Skipulagning verklags í skjalastjórn. − Uppbygging ferla og gerð verklagsreglna.13:0513:05Ragna Kemp Haraldsdóttir
24.09.2018Flokkunarkerfi og aðgangsstýringar.13:0613:06Ragna Kemp Haraldsdóttir
24.09.2018Rýni og úttektir á verklagi.13:0713:07Ragna Kemp Haraldsdóttir
24.09.2018Skráning og skjölun í rafræn kerfi.13:0813:08Ragna Kemp Haraldsdóttir