Fríhafnarskólinn, lota 2 - Sala og þjónusta - Vakt A
Hlutverk starfsmanna Fríhafnarinnar er að selja vörurnar sem þar eru á boðstólnum og þjónusta viðskiptavinina sem best verður á kosið. Viðskiptavinir geta verið kröfuharðir og mikilvægt er að mæta þeim með jákvæðu viðhorfi og uppfylla þarfir þeirra á kurteisan og yfirvegaðan hátt. Viðskiptavinir geta líka verið uppburðarlitlir og óákveðnir og þá er nauðsynlegt að nálgast þá á persónubundinn hátt og leiðbeina þeim af kostgæfni. Í þessari lotu verður meðal annars fjallað um viðhorf viðskiptavina og söluhvetjandi samskipti við þá. Í upphafi lotunnar er 6 klukkustunda vínskóli þar skerpt verður á þekkingu þátttakenda í vínfræðum. Frætt verður um helstu einkenni vína frá ýmsum hliðum og er þar innifalin vínsmökkun. Lotan er samtals 27 klukkustundir.
Athugið að skráningarfrestur er til 20. desember.
| Námskeið | Lengd | Umsjón |
| Fríhöfnin í stóra samhenginu | 3 klst. | Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri og NN |
| Vínskóli | 6 klst. | Dominique Plédel Jónsson, Vínskólanum |
| Sala, þjónusta og menningarlæsi | 15 klst. | Margrét Reynisdóttir, Gerum betur ehf |
| Tilkynnt síðar | 3 klst. | NN. Tilkynnt síðar |
Námskeiðin eru haldin hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum að Krossmóa 4.
Stundaskrá
Námslýsingar á námskeiðum Margrétar Reynisdóttur, Ráðgefandi þjónusta og sala, Þjónustustjórnun og sölumarkmið, Söluhvetjandi samskipti og samningatækni, Menningarlæsi og þjónustusamskipti og Algeng mistök og verðmætir kostir sölufólks.
Námslýsingar á Fríhöfnin í stóra samhenginu og Vínskólanum.
Námsleiðin er í samstarfi við Gerum betur ehf og Vínskólann.
Hæfniviðmið
Að auka hæfni þátttakenda til að selja fjölbreyttum hópi viðskiptavina það sem hentar þeim
Að auka hæfni þátttakenda til að setja raunhæf, hvetjandi og tímasett þjónustu og sölumarkmið
Að auka hæfni þátttakenda til að skapa traust í viðskiptum
Að auka hæfni þátttakenda til að til að tileinka sér vinnubrögð sem leiða til árangurs
Að auka hæfni þátttakenda til að þekkja þrúgur og lesa og skilja upplýsingamiða á víni
Fyrirkomulag
Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Vínsmökkun.Helstu upplýsingar
- TímiNámskeiðin standa frá 9. janúar til 10. mars.
- Lengd27 klst.
- UmsjónÞorgerður Þráinsdóttir framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, Margrét Reynisdóttir M.Sc. í stjórnun og stefnumótun og M.Sc. í alþjóða markaðsfræði og Dominique Plédel Jónsson sérfræðingur frá Vínskólanum.
- StaðsetningMiðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Krossmóa 4, Reykjanesbæ.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsfólk Fríhafnarinnar.
- MatTil að útskrifast úr Lotu 2 þarf a.m.k. 90% mætingu.
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttirsolborg(hjá)smennt.is550-0060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 09.01.2020 | Fríhöfnin í stóra samhenginu | 09:00 | 12:00 | Þorgerður Þráinsdóttir og NN (tilkynnt síðar) |
| 23.01.2020 | Vínskólinn | 09:00 | 12:00 | Dominique Janie Henrietta Pledel Jónsson |
| 28.01.2020 | Vínskólinn | 09:00 | 12:00 | Dominique Janie Henrietta Pledel Jónsson |
| 06.02.2020 | Sala, þjónusta og menningarlæsi | 09:00 | 12:00 | Margrét Reynisdóttir |
| 11.02.2020 | Sala, þjónusta og menningarlæsi | 09:00 | 12:00 | Margrét Reynisdóttir |
| 20.02.2020 | Sala, þjónusta og menningarlæsi | 09:00 | 12:00 | Margrét Reynisdóttir |
| 25.02.2020 | Sala, þjónusta og menningarlæsi | 09:00 | 12:00 | Margrét Reynisdóttir |
| 05.03.2020 | Sala, þjónusta og menningarlæsi | 09:00 | 12:00 | Margrét Reynisdóttir |
| 10.03.2020 | Tilkynnt síðar | 09:00 | 12:00 | NN |