SSH - Velferðartækni

Námskeiðið hefur það markmið að kynna þátttakendum hugtakið velferðartækni og hvernig velferðartækni nýtist meðal annars í daglegu lífi innan heimilisins, í umönnun og aðhlynningu, hreyfingu, félagslegri þátttöku, eigin umsjá, tjáningu og þjálfun/endurhæfingu. Kynnt verða straumar og stefnur, helstu reglugerðir, Velferðartæknismiðja Reykjavíkurborgar, Connect verkefnið og hvar hægt er að leita upplýsinga, ráðgjafar og þjónustu tengt velferðartækni á Íslandi. Þátttakendum verða gefin verkfæri til að greina hvenær hægt er að nýta velferðartækni til að stuðla að aukinni vinnuvernd, sjálfsbjargargetu og betri lífsgæðum.

Hæfniviðmið

Að þátttakendur geti greint hvenær hægt er að nýta velferðartækni til að stuðla að aukinni vinnuvernd, sjálfsbjargargetu og betri lífsgæðum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    26. september 2019, frá kl. 9:00-12:00.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Berglind Indriðadóttir og Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, iðjuþjálfar.
  • Staðsetning
    Grettisgata 89, 105 Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía Guðný Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
26.09.2019Velferðartækni09:0012:00Berglind Indriðadóttir og Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir