Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin

Á námskeiðinu er farið í grunninn á verkefnastjórnun sem og hvað verkefnastjórnun er og hvar hún getur nýst. Áhersla er á undirbúning og eftirfylgni verkefna til að tryggja árangur. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hvernig hægt er að beita verkefnastjórnun á lítil sem stór verkefni.

Á námskeiðinu er fjallað um:
• Skilgreiningu á hvað er verkefni og hvað er verkefnastjórnun.
• Undirbúning verkefna og ræs.
• Hvernig skilgreina á markmið verkefna og hvernig árangur er metinn.
• Uppsetning verkefnis: Hvernig tíma- og kostnaðaráætlanir líta út.
• Eftirfylgni verkefnisáætlunar.
• Skil og lúkning verkefna.

Hæfniviðmið

Að auka skiling á verkefnastjórnun og leiðum til betri árangurs.

Að þróa hæfni í að taka við verkefnum og leysa þau.

Fyrirkomulag

Kennsla fer fram með fyrirlestrum og umræðum. Tekin verða fyrir hagnýt og raunveruleg verkefni sem flestir ættu að geta samsvarað sig við. Í lok námskeiðs fá þátttakendur viðurkenningarskjal frá EHÍ hafi þeir staðist námskeiðið.







Helstu upplýsingar

  • Tími
    Þriðjudaginn 4. feb. frá klukkan 13:00 - 17:00.
  • Lengd
    4 klst.
  • Umsjón
    Sveinbjörn Jónsson M.Sc. í verkfræði og MPM.
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 107 Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Félagsmenn Starfsmenntar sem vilja kynnast aðferðfræði verkefnastjórnunar.
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    100% mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    smennt(at)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
04.02.2020Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin13:0017:00Sveinbjörn Jónsson