Excel töflureiknir, grunnur - Vefnámskeið

Hér kynnum við helstu grunnverkfæri Excel og áttum okkur á notendaviðmótinu.

Farið er yfir grunn í uppsetningum formúla, s.s. summu, frádrátt, marföldun og deilingu. Við skoðum einnig vísun í reiti og skjöl og útlitsmótun gagna. 

Sérstaklega verður fjallað um uppsetningu og mótun á texta, töflum og myndritum í Excel, uppsetningu á haus og fæti og prentun skjala. 

Námskeiðið er vefnámskeið. 

Þátttakendur sækja svo alla aðstoð við námið til kennarans, Bjartmars Þórs Huldusonar, í gegnum tölvupóst og þjónustusíma sem er opinn frá kl. 10.00 - 20.00 alla virka daga. 
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta nám er þér velkomið að hafa samband við Bjartmar Þór Hulduson í síma 788 8805 eða í netfangið kennari(at)nemandi.is.

ATH! Námskeiðið er einnig haldið:

18. desember -" VALFRJÁLST UPPHAF": NÝJUNG! Þarft ekki að bíða til 18. des., getur hafið námið um leið og skráning er samþykkt (ef skráning er eftir 25/9).

29. janúar.

28. maí - "VALFRJÁLST UPPHAF": NÝJUNG! Þarft ekki að bíða til 28. maí, getur hafið námið um leið og skráning er samþykkt (ef skráning er eftir 29/1).

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Tölvuskólann Nemandi.is.

Hæfniviðmið

Að byggja upp góða grunnfærni í Excel töflureikni.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið. Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu. Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið. Nemendur sækja alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum tölvupóst eða þjónustusíma 788 8805 sem er opinn 10-20 virka daga.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    25. september. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
  • Staðsetning
    Vefnámskeið.
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    33.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Allir sem vilja geta nýtt Excel á markvissan hátt.
  • Gott að vita
    Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Verkefnaskil.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
25.09.2018Grunnur notendaviðmóts Excel skoðaður og helstu verkfæri kynnt.Bjartmar Þór Hulduson
01.10.2018Framkvæmd útreikninga í Excel. Uppsetningar á einföldum formúlum. Beinar og afstæðar tilvísanir.Bjartmar Þór Hulduson
08.10.2018Mótun gagna. Töflur og uppsetning þeirra. Uppsetning, mótun og virkni myndrita.Bjartmar Þór Hulduson