Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu - Er gaman í vinnunni? Áskoranir og (starfs)ánægja - Hópur I

Vinnan er stór hluti af lífi okkar og vellíðan á vinnustað skiptir máli fyrir lífsgæði okkar almennt. Á námskeiðinu er fjallað um viðhorf til verkefna, vinnustaðarins og vinnufélaga. Fjallað verður um ábyrgð einstaklings á eigin starfsþróun og líðan í lífi og starfi. Rætt er um samskiptahætti, starfsánægju og skipulag verkefna. ,,Hvaða strauma sendir þú frá þér?“ er spurning sem þátttakendur vinna með. Sérstaklega er unnið með hrós og endurgjöf og fleiri leiðir til að hlúa að góðu andrúmslofti og vinnustaðamenningu.

Hæfniviðmið

Aukið sjálfstraust og bættur árangur í starfi.

Að þekkja eigin styrk og takast á við eigin takmarkanir.

Aukin vitund um ábyrgð á eigin líðan, hvernig viðhorf hafa áhrif á umhverfið og ánægju.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Þriðjudaginn 24. september 2019, frá kl. 8:30-10:30.
  • Lengd
    2 klst.
  • Umsjón
    Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Staðsetning
    Hlíðarsmári 1, 201 Kópavogi.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsmenn Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
  • Gott að vita
    Aðeins fyrir starfsfólk Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
24.09.2019Sjálfstyrking og starfsánægja08:3010:30Sigríður Hulda Jónsdóttir