Jafnlaunastaðall: I. Kynning á jafnlaunastaðli og inngangur - Fjarnámskeið

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017 með breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Samkvæmt lögunum skal jafnlaunavottun byggjast á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85.

Með innleiðingu hans geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.

Á námskeiðinu er jafnlaunastaðallinn kynntur og farið yfir helstu forsendur og kröfur fyrir innleiðingu jafnlaunakerfis. Með innleiðingu staðalsins taka fyrirtæki og stofnanir upp skipulagðar aðferðir til að vinna að því að tryggja jöfn kjör til kvenna og karla fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Fjallað er um hver séu réttu skrefin í innleiðingu staðalsins, hverju þarf að huga að, hvað þarf að gera og hvernig tryggja megi kerfisbundna innleiðingu og að kröfur séu uppfylltar. Farið er yfir hvernig skipuleggja megi innleiðingu og sýnd eru dæmi um tékklista, verk- og tímaáætlun.

Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að búa yfir nauðsynlegri þekkingu til að hefja vinnu við innleiðingu jafnlaunastaðalsins á sínum vinnustað.

Aðrar upplýsingar:
Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að staðlinum ÍST85:2012, sem má nálgast á stadlar.is

Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundakerfið ZOOM.
Þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu, vefmyndavél, hljóðnema og góða ADSL eða ljósnet/leiðara tengingu. Mælt er með að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.
Föstudaginn 11. okt. kl 13:00 fer fram prufa á búnaði og ZOOM kerfinu fyrir þá þátttakendur sem það vilja.
Slóð námskeiðsins verður sent á það netfang sem þátttakandi hefur gefið upp við skráningu.

Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð.

Skráningu (fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar) lýkur 27.sept. kl.10:00.

Hæfniviðmið

Að öðlast skilning á jafnlaunastaðlinum (ÍST 85:2012) og markmiðum hans.

Að þekkja helstu forsendur og kröfur fyrir innleiðingu jafnlaunakerfis.

Að öðlast aukna færni til að gegna leiðandi hlutverki við innleiðingu jafnlaunastaðalsins.

Að fá tækifæri til að kynnast og tengjast öðrum í sömu sporum varðandi innleiðingu staðalsins.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð. 

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Mánudaginn 14.okt. kl. 13:00 - 16:00.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Guðný Einarsdóttir er sérfræðingur hjá kjara- og mannauðssýslu ríkisins í fjármála-og efnhagsráðuneytinu.
  • Staðsetning
    FJARNÁMSKEIÐ
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað forstöðumönnum, mannauðsstjórum, gæðastjórum og öðrum þeim sem ætlað er að stýra eða gegna ábyrgðarhlutverki við innleiðingu .
  • Gott að vita
    Starfsmennt greiðir námskeiðið fyrir aðildarfélaga. Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundakerfið ZOOM. Þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu, vefmyndavél, hljóðnema og góða ADSL eða ljósnet/leiðara tengingu. Mælt er með að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Þátttaka.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    smennt(at)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
14.10.2019Á námskeiðinu er fjallað um:13:0016:00Guðný Einarsdóttir er sérfræðingur hjá kjara- og mannauðssýslu ríkisins í fjármála-og efnhagsráðuneytinu.
14.10.2019Forsögu jafnlaunastaðalsins og markmið.13:0113:01Guðný Norðdahl Einarsdóttir
14.10.2019Umfang jafnlaunastaðalsins og forsendur innleiðingar.13:0213:02Guðný Norðdahl Einarsdóttir
14.10.2019Jafnlaunastefnu og helstu verklagsreglur.13:0313:03Guðný Norðdahl Einarsdóttir
14.10.2019Kröfur til stjórnunar jafnlaunakerfis og vottunar.13:0413:04Guðný Norðdahl Einarsdóttir
14.10.2019Vottunarleiðir og jafnlaunamerki.13:0513:05Guðný Norðdahl Einarsdóttir
14.10.2019Ferlið við innleiðingu jafnlaunastaðalsins.13:0613:06Guðný Norðdahl Einarsdóttir
14.10.2019Ávinning innleiðingar og helstu hindranir.13:0713:07Guðný Norðdahl Einarsdóttir