Sýslumaðurinn á Höfuðborgarsvæðinu - Að þekkja þarfir þjónustuþega og veita góða þjónustu HÓPUR 2
Kröfur um góða þjónustu eru miklar, og hraðar breytingar í umhverfi stofnana hafa áhrif á samskipti og þjónustu við mismunandi hópa og einstaklinga. Léleg þjónusta er ávísun á slæmt umtal, kvartanir og óánægju þjónustuþega jafnt sem líðan og óánægju starfsmanna en góð og fagleg þjónusta ávísun á meiri ánægju viðskiptavinar og vinnugleði og líðan starfsmanns.
Framkoma, viðmót og afstaða til þjónustuþegans eru aðalviðfangsefni þessa námskeiðs. Ýmis smáatriði geta orðið að stórum atriðum sem að lokum ráða úrslitum um upplifun þjónustuþega, vinnugleði starfsmanns og það orðspor sem fer af þjónustu stofnunarinnar. Á þessu námskeiði er lögð áhersla á viðhorf og viðmót, muninn á afgreiðslu og þjónustu, þjónustulund, ánægju af því að leysa mál eða vinna úr kvörtunum þjónustuþega, innri þjónustu, þjónustu í síma og texta, og margt fleira.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að heyra viðhorf og reynslu starfsmanna jafnt sem miðla fræðslu og ráðum.
Námskeiðið skiptist í tvo hluta, hver hluti eru 2 klst.
Hæfniviðmið
Að efla og styrkja reynt starfsfólk jafnt sem þá sem hafa unnið skemur í þjónustustarfi.
Að gefa starfsfólki tækifæri til að eiga samtal um leiðir til að gera þjónustuna þægilegri fyrir alla.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræða, virk þáttaka.Helstu upplýsingar
- TímiFyrri hluti: mið. 16.janúar kl. 08:30 - 10:30 Seinni hluti: mið. 23. janúar kl. 08:30 - 10:30
- Lengd4 klst.
- UmsjónSteinunn Inga Stefánsdóttir (Starfsleikni).
- StaðsetningHlíðasmára 1, 201 Kópavogi.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er ætlað starfsfólki Sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu.
- Gott að vitaNámskeiðið er ætlað starfsfólki Sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu.
- MatMæting.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(at)smennt.is550 0060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 16.01.2019 | Að þekkja þarfir þjónustuþega og veita góða þjónustu. | 08:30 | 10:30 | Steinunn Inga Stefánsdóttir (Starfsleikni). |
| 23.01.2019 | 08:30 | 10:30 | Steinunn Inga Stefánsdóttir |