SFR - Gott að vita - Tálgun

Fróðlegt og skemmtilegt námskeið þar sem Bjarni Þór handverksmaður, kennir grunntækni við tálgun. Allt efnið og áhöld verða á staðnum. Farið verður yfir grunnatriði hnífsins, notkun hans og meðferð. Unnið verður í ferskan við en verkefnin eru við hæfi hvers og eins. Farið verður í efnafræði og meðhöndlun viðar og brýningu á hníf.

Nánari upplýsingar veittar hjá Framvegis á helga@framvegis.is eða í síma 581-1900, en Framvegis sér um skipulagningu námskeiðanna. 


Hæfniviðmið

Að þátttakendur læri handtökin við tálgun, meðhöndlun vekfæra og efnis.

Fyrirkomulag

Verkleg kennsla.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    17. og 18. október 2018, frá kl. 18.00-21.00.
  • Lengd
    6 klst.
  • Umsjón
    Framvegis.
  • Staðsetning
    Handverkshúsið, Dalvegi 10 - 14, 201 Kópavogi.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðildarfélagar SFR og St.Rv.
  • Gott að vita
    Aðeins fyrir aðildarfélaga SFR og St.Rv.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Helga Tryggvadóttir
    helga@framvegis.is
    581 1900

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
17.10.2018Tálgun18:0021:00Bjarni Þór Kristjánsson
18.10.2018Tálgun18:0021:00Bjarni Þór Kristjánsson