Isavia - Lykilþættir í stjórnun við innleiðingu breytinga og myndun teyma - 12. feb. kl. 9:00-12:00
Fjallað er um lykilþætti farsællar stjórnunar, helstu stjórnunarstíla, stjórnun við ólíkar aðstæður s.s. stjórnun á óvissutímum og við breytingar, vinnustaðamenningu og þverfaglega færni sem horft er til í atvinnulífi og stjórnun á 21. öldinni. Hvernig þessir þættir birtast í daglegum störfum stjórnenda svo sem við starfsmannahald, stefnumótun, starfsmannaval, samsetningu og virkni hópa.
Rætt er um leiðir stjórnenda til að efla liðsheild teyma, árangur og starfsánægju starfsmanna sinna og liðsheilda. Nefnd einkenni jákvæðrar og neikvæðrar vinnustaðamenningar og hvernig hægt er að hafa áhrif á mótun hennar.
Farið yfir þau atriði sem skapa samkennd og samtakamátt á vinnustað auk þess sem rætt er um hvað vinnur gegn liðsheild.
Hæfniviðmið
Að skilja og þekkja stjórnunarstíla og ferli breytinga
Að þekkja aðferðir og leiðir til að innleiða breytingar, lykilþætti og hvað bera að varast
Að auka þekkingu á leiðum til að efla liðsheild og jákvæða vinnustaðamenningu
Að geta valið og hagnýtt þau verkfæri sem kynnt eru til að takast á við breytingar
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræðurHelstu upplýsingar
- Tími12. febrúar 2021, frá kl. 9-12.
- Lengd3 klst.
- UmsjónSigríður Hulda Jónsdóttir
- StaðsetningVefnámskeið
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsmenn Isavia
- Gott að vitaAðeins fyrir þá sem boðaðir hafa verið á námskeiðið.
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
12.02.2021 | Lykilþættir í stjórnun við innleiðingu breytinga og myndun teyma | 09:00 | 12:00 | Sigríður Hulda Jónsdóttir |