Viðurkenndur bókari - Opni háskólinn í HR - Fjarnám
Námslínan skiptist í tvö námskeið:
Reikningshald: Markmið námskeiðsins er að dýpka skilning nemenda á meginreglum reikningshalds og því lagaumhverfi sem bókhald og reikningsskil eru byggð á. Mikil áhersla er lögð á notkun Excel.
Skattskil og upplýsingakerfi: Námskeiðið veitir nemendum almenna innsýn í skattalög og reglur varðandi skattlagningu fyrirtækja og einstaklinga. Lögð er áhersla á að bæta þekkingu nemenda á upplýsingaskyldu og verklagi varðandi virðisaukaskatt og aðra vörsluskatta. Einnig verður farið yfir grunnatriði innra eftirlits og öryggis í upplýsingakerfum.
Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hafi með sér tölvu í staðarlotur Excel námskeiðsins. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð nemenda.
Upptökur af fyrirlestrum verða birtar inn á samskiptavef nemenda daginn eftir að fyrirlestrar fara fram. Tvær staðarlotur verða haldnar í Opna háskólanum í HR yfir námstímann. Staðarloturnar verða ekki teknar upp.
Hæfniviðmið
Undirbúningur fyrir próf á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis til viðurkenningar bókara, skv. 43.grein laga nr. 145/1994 um bókhald.
Fyrirkomulag
Námið er 132 klst. og stendur nemendum til boða bæði í staðarnámi og fjarnámi. Kennt er tvisvar til þrisvar í viku kl. 17-21. Námið hefst í ágúst og lýkur í desember.
Fyrirlestrar og dæmatímar
Kennsla fer fram í fyrirlestraformi og í dæmatímum þar sem farið er í verklegar æfingar í Excel.
Upptökur úr tímum
Upptökur af fyrirlestrum eru birtar á vefnum daginn eftir að fyrirlestrar fara fram og bjóða upp á sveigjanleika fyrir nemendur.
Skynsamlegt er að gera ráð fyrir að þurfa að taka frí frá vinnu á helstu álagstímum. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hafi með sér tölvu í Excel hluta námskeiðsins.
Þeir sem skrá sig hjá Starfsmennt þurfa einnig að skrá sig hjá Háskólanum í Reykjavík.
Helstu upplýsingar
- TímiHaustönn 2019
- Lengd132 klst.
- UmsjónLúðvík Þráinsson, lögg.endursk. hjá Deloitte, Helga Hauksdóttir, lögfræðingur hjá Ernst & Young, Emil Viðar Eyþórsson og Páll Daði Ásgeirsson, lögg.endursk. hjá Deloitte, Tryggvi R. Jónsson, deildarstjóri rekstrarlausna Advania á Akureyri
- StaðsetningOpni háskólinn í HR, Menntavegi 1, 101 Reykjavík, Mars-álma, 2. hæð.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámið er einkum ætlað starfsfólki bókhalds-, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja og sjálfstætt starfandi bókurum.
- Gott að vitaÖðrum en aðildarfélögum Starfsmenntar er bent á að skrá sig hjá Opna háskólanum í HR, s. 599 6300.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 13.08.2019 | Viðurkenndur bókari | 00:00 | 00:00 | Opni háskólinn í HR. |