Hafnarfjörður - Jákvæð sálfræði
Þátttakendur læra leiðir til að njóta lífsins betur og vera virkari. Farið er í léttar og skemmtilegar æfingar sem eru til þess fallnar að nýta eigin styrkleika betur, bæta samskipti og ná meiri árangri.
Jákvæð sálfræði fæst við rannsóknir á því sem fólk gerir rétt frekar en því sem fólk gerir rangt. Jákvæð sálfræði hefur þrjár grunnstoðir: jákvæðar tilfinningar, styrkleika og jákvæð samskipti.
Dæmi um styrkleika einstaklinga eru hugrekki, samúð, sköpunarkrafur, þrautseigja og heilindi. Ávinningur þinn eftir þetta námskeið gæti verið meiri ánægja og gleði í daglegu lífi ásamt aukinni sjálfsþekkingu og bættum samskiptum.
Hæfniviðmið
Að auka ánægju og gleði í daglegu lífi.
Að auka sjálfsþekkingu og bæta samskipti.
Að auka færni í að greina og nýta styrkleikana.
Að auka árangur.
Fyrirkomulag
Fyrirlestrur og umræður.Helstu upplýsingar
- Tími9. nóvember. Kl. 8.00-10.00.
- Lengd3 klst.
- UmsjónSigríður Hulda Jónsdóttir, ráðgjafi hjá SHJ ráðgjöf.
- StaðsetningHvaleyrarskóli, fyrirlestrarsal.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er ætlað starfsmönnum Skarðshlíðarskóla, Hvaleyrarskóla, Víðistaðaskóla.
- Gott að vitaNámskeiðið er ætlað starfsmönnum Skarðshlíðarskóla, Hvaleyrarskóla, Víðistaðaskóla.
- MatMæting.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(at)smennt.is5500060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 09.11.2018 | Jákvæð sálfræði | 08:00 | 10:00 | Sigríður Hulda Jónsdóttir |