Árangursrík kennsla
Á þessu námskeiði er ætlunin að hjálpa þátttakendum að mæta þörfum fullorðinna námsmanna og auka færni þeirra í að skipuleggja og halda námskeið fyrir fullorðna.
Þátttakendur kynnast kenningum um nám og lærdóm fullorðinna. Byggt á þessum kenningum læra þeir aðferðir til að skipuleggja nám, takast á við upphaf og endi námsskeiðs eða námshluta og að hjálpa fullorðnum að læra. Þátttakendur læra einnig hagnýtar aðferðir til að virkja þátttakendur á námskeiðum sínum, með það fyrir augum að auka árangur námsmannanna.

Hæfniviðmið
Að auka skilning á sérstöðu fullorðinna námsmanna.
Að kynna fjölbreyttar og árangursríkar kennsluaðferðir við kennslu fullorðinna.
Að þátttakendur tileinki sér viðhorf og framkomu við nemendur sem eru vænleg til árangurs.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.Helstu upplýsingar
- Tími20. september 2018 frá kl. 13-16.
- Lengd3 klst.
- UmsjónHróbjartur Árnason, lektor í kennslufræði fullorðinna við Háskóla Íslands.
- StaðsetningSkipholt 50b, 3. hæð, 105 Reykjavík.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámið hentar öllum sem koma að fræðslu fullorðinna og símenntun.
- Gott að vitaNámskeiðið er öllum aðildarfélögum og kennurum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatMæting.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 20.09.2018 | Hagnýtar kennsluaðferðir í fullorðinsfræðlu | 13:00 | 16:00 | Hróbjartur Árnason |