Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun

Á námskeiðinu er farið yfir helstu hugtök og grunnatriði verkefnastjórnunar. Lögð er áhersla á gerð verkefnisáætlunar sem er grundvöllur að góðri verkefnastjórnun. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hlutverk verkefnastjórans.

Á námskeiðinu er fjallað um:
• Verkefnisgreiningar m.a. hagsmunaaðila- og áhættugreiningar.
• Árangursmælikvarða og markmiðasetningu.
• Sundurliðun verkefnis í verkþætti og gerð tíma- og kostnaðaráætlana.
• Stjórnskipulag verkefnis og samskipti.
• Ræs og lúkning verkefna.

Þetta námskeið er gott upphaf að undirbúningi fyrir IPMD D vottun og meira nám í verkefnastjórnun.


Hæfniviðmið

Að þróa hæfni til að leiða verkefni og vinna í verkefnum til betri árangurs.

Að þróa hæfni til að vinna í hópi með raunveruleg verkefni.

Fyrirkomulag

Kennsla fer fram með fyrirlestrum og hópæfingum þar sem nemendur takast á við aðferðafræði og beita henni á raunveruleg dæmi. Í lok námskeiðs fá þátttakendur viðurkenningarskjal frá EHÍ hafi þeir staðist námskeiðið.





Helstu upplýsingar

  • Tími
    Mánudaginn 18. og þriðjudaginn 19. mars 2019 frá klukkan 13:00 - 17:00.
  • Lengd
    8 klst.
  • Umsjón
    Sveinbjörn Jónsson M.Sc. í verkfræði og MPM. Samræmingarstjóri hjá Isavia.
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 107 Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Félagsmenn Starfsmenntar sem vilja kynnast aðferðfræði verkefnastjórnunar
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    100% mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    smennt(at)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
18.03.2019Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun13:0017:00Sveinbjörn Jónsson
19.03.2019Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun13:0017:00Sveinbjörn Jónsson