Viðurkenndur bókari - Opni háskólinn í HR
Námið skiptist í tvær lotur:
Reikningshald: Markmið námskeiðsins er að dýpka skilning nemenda á meginreglum reikningshalds og því lagaumhverfi sem bókhald og reikningsskil eru byggð á. Mikil áhersla er lögð á notkun Excel.
Skattskil og upplýsingakerfi: Námskeiðið veitir nemendum almenna innsýn í skattalög og reglur varðandi skattlagningu fyrirtækja og einstaklinga. Lögð er áhersla á að bæta þekkingu nemenda á upplýsingaskyldu og verklagi varðandi virðisaukaskatt og aðra vörsluskatta. Einnig verður farið yfir grunnatriði innra eftirlits og öryggis í upplýsingakerfum.
Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hafi með sér tölvu í Excel hluta námskeiðsins. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð nemenda.
Upptökur af fyrirlestrum verða birtar inn á samskiptavef nemenda daginn eftir að fyrirlestrar fara fram. Tvær staðarlotur verða haldnar í Opna háskólanum í HR yfir námstímann. Staðarloturnar verða ekki teknar upp.
Námið er einkum ætlað starfsfólki bókhalds-, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja og sjálfstætt starfandi bókurum.
Mælt er með því að umsækjendur hafi unnið við bókhald í amk 2-3 ár og hafi á þeim tíma sinnt margvíslegum og krefjandi bókhaldsstörfum.
Góð reynsla og þekking á Excel, bókhaldi, reikningshaldi og skattalegum atriðum er nauðsynleg. Þeir sem eru ekki vissir um getu sína í einhverju fyrrgreindra eiga þess kost að sitja námskeiðið Almennir bókarar að vori. Seta í því námskeiði tryggir þó ekki inngöngu í undirbúningsnám til viðurkenningar bókara.
Boðið er uppá bæði fjar- og staðnám.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Opna háskólans í HR.
Athygli er vakin á því að sækja þarf um bæði hjá okkur og Opna háskólanum.

Hæfniviðmið
Undirbúningur fyrir próf á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis til viðurkenningar bókara, skv. 43.grein laga nr. 145/1994 um bókhald.
Fyrirkomulag
Tími: Kennt verður 2-3x í viku, á virkum dögum, frá kl. 16:30 - 20:30. Fyrirlestrar verða á mánudögum / miðvikudögum. Dæmatímar eru á þriðjudögum / fimmtudögum. Nánari upplýsingar er að finna í kennsluáætlun. Kennsla fer fram í fyrirlestraformi og í dæmatímum, þar sem farið er í verklegar æfingar í Excel. Skynsamlegt er að gera ráð fyrir að þurfa að taka frí frá vinnu á helstu álagstímum. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hafi með sér tölvu í Excel hluta námskeiðsins.Helstu upplýsingar
- TímiHaustönn 2015.
- Lengd132 klst.
- UmsjónLúðvík Þráinsson, lögg.endursk. hjá Deloitte, Helga Hauksdóttir, lögfræðingur hjá Ernst & Young, Emil Viðar Eyþórsson og Páll Daði Ásgeirsson, lögg.endursk. hjá Deloitte, Tryggvi R. Jónsson, deildarstjóri rekstrarlausna Advania á Akureyri
- StaðsetningMenntavegur 1, 101 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámið er einkum ætlað þeim sem starfa eða hafa hug á starfi ái bókhalds-, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja og sjálfstætt starfandi bókurum. Eingöngu fyrir félagsmenn.
- Gott að vitaÖðrum en aðildarfélögum Starfsmenntar er bent á að skrá sig hjá Opna háskólanum í HR, s. 599 6300.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
06.08.2015 | Viðurkenndur bókari | 00:00 | 00:00 | Opni háskólinn í HR. |