20 góð ráð í þjónustusímsvörun - stafrænt námskeið

Fjallað er um hvernig á að veita afbragðsþjónustu í gegnum síma. Kennd eru ýmis  gagnleg ráð til að hafa samtöl faglegri og um leið hnitmiðaðra. Farið er yfir tækni sem má nota í samskiptum við erfiða einstaklinga í síma.  Námskeiðið er byggt upp með leiknum vídeóum, krossaspurningum og verkefnum.

Þátttakendur fá rafbókina 20 góð ráð í þjónustusímsvörun  og gátlista yfir lykilþætti í þjónustusímsvörun. Nánari upplýsingar um bókina má sjá á www.gerumbetur.is. Þátttakendur fá einnig 4 vikum eftir námskeiðslok sendan tölvupóst með áminningu um mikilvæga þætti í þjónustusímsvörun.

Námskeiðið er opið í 4 vikur.

Hæfniviðmið

Stýra og stytta samtöl.

Þekkja algeng mistök í þjónustusímsvörun.

Læra ýmis ráð í samskiptum við erfiða einstaklinga.

Efla öryggi í samskiptum og fagmennsku.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum, krossaspurningum og verkefnum.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    18. mars 2020, námskeiðið er opið í fjórar vikur.
  • Lengd
    10 klst.
  • Umsjón
    Margrét Reynisdóttir
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    12.900 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er opið öllum.
  • Gott að vita
    Starfrænt nám er hægt að stunda hvar og hvenær sem er.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Skila verkefnum 4 vikum eftir að námskeið hefst.
  • Ummæli
  • Mér fannst námskeiðið mjög gagnleg og skemmtileg. Eins var gott að vinna þau rafrænt og fá að velja þann tíma sem hentar.

    – Kolbrún Sigmundsdóttir

  • Þetta er námskeið sem ég hvet aðra til að taka.

    – Sigurlaug Lára Ingimundardóttir, ráðgjafi hjá Íbúðalánasjóði

  • Takk fyrir, vel gert og hagnýtt námskeið sem ég á eftir að nýta mér í starfi.

    – Aldís Eyjólfsdóttir, starfsmannastjóri NLFÍ

  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
18.03.202020 góð ráð í þjónustusímsvörunMargrét Reynisdóttir