Jafnlaunastaðall: II. Gæðastjórnun og skjölun - FJARNÁMSKEIÐ

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017 með breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Samkvæmt lögunum skal jafnlaunavottun byggjast á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85.

Með innleiðingu hans geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.
Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð.

Námskeiðið er hluti af undirbúningsferli vegna innleiðingar jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. 

Þess er krafist í staðlinum að fyrirtæki og stofnanir skilgreini og skjalfesti jafnlaunakerfi sitt og jafnlaunastefnu. Lögð er áhersla á skráningu og rekjanleika þeirra upplýsinga sem þörf er á til að staðfesta launajafnrétti kynja við vottun. Það er mikilvægt að verklag og aðferðir gefi greinargóða mynd af launamyndun og að hægt sé að vísa í skjalfest gögn þessu til stuðnings.

Á námskeiðinu er fjallað almennt um gæðastjórnun í tengslum við ávinning af innleiðingu skjalastjórnar á vinnustað. Fjallað er stuttlega um uppbyggingu gæða- og skjalastjórnunarkerfa og lykilatriði staðla og reglugerða. Farið er yfir kröfur jafnlaunastaðalsins og skráningu gagna í rafræn skjalastjórnunarkerfi.


Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að búa yfir nauðsynlegri þekkingu til að hefja vinnu við innleiðingu jafnlaunastaðalsins á sínum vinnustað.

Aðrar upplýsingar:
Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að staðlinum ÍST85:2012, sem má nálgast á stadlar.is

Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundakerfið ZOOM.
Þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu, vefmyndavél, hljóðnema og góða ADSL eða ljósnet/leiðara tengingu. Mælt er með að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.
Föstudaginn 26. okt. kl 13:00 fer fram prufa á búnaði og ZOOM kerfinu fyrir þá þátttakendur sem það vilja.
Slóð námskeiðsins verður sent á það netfang sem þátttakandi hefur gefið upp við skráningu.

Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð.

Skráningu (fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar) lýkur 15.okt. kl.10:00.

Hæfniviðmið

Að þekkja kröfur jafnlaunastaðalsins um skjalfestingu.

Að öðlast skilning á samspili gæðastjórnunar og skjalastjórnar.

Að hljóta innsýn í almennar kröfur um skjalastjórnun, helstu löggjöf, staðla og stefnur.

Að öðlast grunnfærni í að skjalfesta jafnlaunastefnu og jafnlaunakerfi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð.

1) Jafnlaunastaðall: I. Kynning á jafnlaunastaðli og inngangur 
FJARNÁMSKEIÐ: mán. 22. okt. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér
STAÐARNÁMSKEIÐ: mán. 26. nóv. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér

2) Jafnlaunastaðall: II. Gæðastjórnun og skjölun 
FJARNÁMSKEIÐ: mán. 29. okt. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér
STAÐARNÁMSKEIÐ: mán. 3. des. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér

3) Jafnlaunastaðall: III. Gerð verklagsreglna og annarra skjala í gæðakerfum 
FJARNÁMSKEIÐ: mán. 5. nóv. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér
STAÐARNÁMSKEIÐ: mán. 10. des. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér

4) Jafnlaunastaðall: IV. Starfaflokkun 
FJARNÁMSKEIÐ: mán. 12. nóv. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér
STAÐARNÁMSKEIÐ: mán. 7. jan. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér

5) Jafnlaunastaðall: V. Launagreining 
FJARNÁMSKEIÐ: mán. 19. nóv. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér
STAÐARNÁMSKEIÐ: mán. 14. jan. kl. 13:00 - 16:00 skráning hér

Aðrir áhugasamir geta sótt um beint hjá EHÍ hér 

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Mánudaginn 29. okt. kl. 13:00 - 16:00.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Ragna Haraldsdóttir, aðjúnkt við Félags- og mannvísindadeild HÍ. Gestakennari verður kynntur síðar.
  • Staðsetning
    FJARNÁMSKEIÐ
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað forstöðumönnum, mannauðsstjórum, gæðastjórum og öðrum þeim sem ætlað er að stýra eða gegna ábyrgðarhlutverki við innleiðingu .
  • Gott að vita
    Starfsmennt greiðir námskeiðið fyrir aðildarfélaga. Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundakerfið ZOOM. Þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu, vefmyndavél, hljóðnema og góða ADSL eða ljósnet/leiðara tengingu. Mælt er með að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Þátttaka.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    smennt(at)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
29.10.2018Á námskeiðinu er fjallað um:13:0016:00Ragna Haraldsdóttir, aðjúnkt við Félags- og mannvísindadeild HÍ. Gestakennari verður kynntur síðar.
29.10.2018Samspil skjalastjórnar og gæðastjórnunar.13:0113:01Ragna Kemp Haraldsdóttir
29.10.2018Staðla- og regluumhverfi skjalastjórnar.13:0213:02Ragna Kemp Haraldsdóttir
29.10.2018Skjalfesting jafnlaunastefnu og jafnlaunakerfa.13:0313:03Ragna Kemp Haraldsdóttir
29.10.2018Kröfur og verklagsreglur jafnlaunastaðalsins.13:0413:04Ragna Kemp Haraldsdóttir
29.10.2018Skipulagning verklags í skjalastjórn. − Uppbygging ferla og gerð verklagsreglna.13:0513:05Ragna Kemp Haraldsdóttir
29.10.2018Flokkunarkerfi og aðgangsstýringar.13:0613:06Ragna Kemp Haraldsdóttir
29.10.2018Rýni og úttektir á verklagi.13:0713:07Ragna Kemp Haraldsdóttir
29.10.2018Skráning og skjölun í rafræn kerfi.13:0813:08Ragna Kemp Haraldsdóttir