Hafnarfjörður - Fjölmenning og siðir / Að bera virðingu fyrir ólíkum hópum H2.

Á námskeiðinu er fjallað um fjölmenningarleg samfélög og hvað einkennir þau. Rætt er um stöðu nýbúa og hvernig það er að setjast að á nýjum stað.

Sérstök áhersla er lögð á hvernig börn og unglingar upplifa slíka flutninga.

Markmið námskeiðsins er að skapa umræðu hjá starfsmönnum og reyna að auka skilning á ólíkum siðum, venjum og hegðun mismunandi hópa með það fyrir augum að tryggja öryggi gesta.   

Hæfniviðmið

Aukin þekking á hagnýtum aðferðum til að takast á við álag og andstreymi.

Að líta á krefjandi viðfangsefni sem ögrun frekar en óleysanleg vandamál.

Að skilja mikilvægi þess að viðhalda bjartsýni.

Fyrirkomulag

Fyrirlestrur og umræður.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    9. nóvember. Hópur 1: Kl. 8:30 - 11:30. Hópur 2: Kl. 13:00 - 16:00.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Margrét Reynisdóttir, ráðgjafi hjá Gerum betur ehf.
  • Staðsetning
    Hraunvallarskóli.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað starfsmönnum grunnskóla Hafnarfjarðar.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er ætlað starfsmönnum Hraunvallaskóla.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Ummæli
  • 5 atriði sem ég ætla að nýta mér eftir þetta námskeið: 1. Vera meðvitaðri um hegðun mína og annarra (þegar þörf er á, en líka kanski bara almennt). 2. Vera enn opnari fyrir öðruvísi og ólíkum siðum, venjum og skoðunum annarra. 3. Upplýsa mig/fræðast um menningu og siði þeirra þjóða sem ég heimsæki landið hjá, áður en ég fer þangað. 4. Kynna venjur og siði okkar Íslendinga fyrir öðrum, vera tilbúin að útskýra. 5. Dæma ekki fyrirfram annara manna venjur og skoðanir.

  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    smennt(at)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
09.11.2018Fjölmenning og siðir / Að bera virðingu fyrir ólíkum hópum. 13:0016:00Margrét Reynisdóttir