PowerPoint / Margmiðlun og kynningar - Vefnám - Valfrjálst upphaf til 18.desember
PowerPoint er öflugt verkfæri til að útbúa vönduð og eftirtektarverð gögn, t.d. glærur, námsgögn og skjásýningar.
Notandi hefur aðgang að fjölmörgum tilbúnum sniðmátum og þarf aðeins að bæta við texta eða myndum til þess að útbúa lifandi og áhrifamikið efni.
Bæta má við hreyfimyndum og hljóðupptökum sem auka áhrif skjásýninga.
Námskeiðið hentar öllum þeim sem þurfa að flytja mál sitt á skýran og skilmerkilegan hátt og/eða koma efni á framfæri á lifandi og sterkan hátt t.d. með því að setja glærur til kynninga á netið.
Námsþættir:
- Sniðskjöl. Textabreytingar. Litasamsetning og myndefni.
- Listar, töflur, myndrit og skipurit. Haus og fótlínur. Minnispunktar.
- Útlínur, glæruröðun. Hreyfimyndir / Animation. Hljóðsetning. Sjálfvirk spilun.
Hæfniviðmið
Að auka öryggi í gerð glæsusýninga og kynninga.
Að efla færni í framsetningu efnis í PowerPoint.
Fyrirkomulag
Á fyrsta degi leiðir kennari nemendur inn í rafrænt netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt.Kennari er nemendum innan handar með tölvupósti, vefspjalli og í þjónustusíma.
Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu.
Nánari upplýsingar hjá kennara námskeiðsins í síma 788 8805 frá kl. 10-20 á virkum dögum eða í netfangið kennari(hjá)nemandi.is.
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 18. desember 2020 en hægt að byrja strax
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- Verð39.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið hentar sérstakleg vel öllum þeim sem vilja koma efni á framfæri á lifandi og skemmtilegan hátt.
- Gott að vitaVefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatVerkefnaskil
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
18.12.2020 | PowerPoint / Margmiðlun og kynningar | Bjartmar Þór Hulduson |