Excel töflureiknir, grunnur - Vefnámskeið

Hér kynnum við helstu grunnverkfæri Excel og áttum okkur á notendaviðmótinu.

Farið er yfir grunn í uppsetningum formúla, s.s. summu, frádrátt, marföldun og deilingu. Við skoðum einnig vísun í reiti og skjöl og útlitsmótun gagna. 

Sérstaklega verður fjallað um uppsetningu og mótun á texta, töflum og myndritum í Excel, uppsetningu á haus og fæti og prentun skjala. 

Námskeiðið er vefnámskeið. 

Þátttakendur sækja svo alla aðstoð við námið til kennarans, Bjartmars Þórs Huldusonar, í gegnum tölvupóst og þjónustusíma sem er opinn frá kl. 10.00 - 20.00 alla virka daga. 

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta nám er þér velkomið að hafa samband við Bjartmar Þór Hulduson í síma 788 8805 eða í netfangið kennari(at)nemandi.is.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Tölvuskólann Nemandi.is.

Hæfniviðmið

Að byggja upp góða grunnfærni í Excel töflureikni.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið. Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu. Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið. Nemendur sækja alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum tölvupóst eða þjónustusíma 788 8805 sem er opinn 10-20 virka daga.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    24. sept. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
  • Staðsetning
    Vefnámskeið.
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    33.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Allir sem vilja geta nýtt Excel á markvissan hátt.
  • Gott að vita
    Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Aðstoð með tölvupósti og í þjónustusíma kl. 10-20 virka daga.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Verkefnaskil.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
24.09.2019Grunnur notendaviðmóts Excel skoðaður og helstu verkfæri kynnt.Bjartmar Þór Hulduson
30.09.2019Framkvæmd útreikninga í Excel. Uppsetningar á einföldum formúlum. Beinar og afstæðar tilvísanir.Bjartmar Þór Hulduson
07.10.2019Mótun gagna. Töflur og uppsetning þeirra. Uppsetning, mótun og virkni myndrita.Bjartmar Þór Hulduson