Isavia - Árangursrík samskipti - trú á eigin getu
Hér er um stutta vinnustofu að ræða þar sem tekin verða fyrir þau lykilatriði sem gera fólki kleift að ná sínu besta fram þegar máli skiptir ásamt því að ná hámarksárangri í samskiptum.
Farið verður yfir þau atriði sem einkenna jákvæð og árangursrík samskipti og hvernig unnt er að takast á við krefjandi einstaklinga með farsælum hætti þrátt fyrir ólíkar þarfir þeirra og framkomu. Þá verður einnig fjallað um áhrif hugarfars á hegðun og líðan með áherslu á aðferðir til að efla eigið sjálfstraust.
Vinnustofan byggist á fyrirlestri, umræðum og verkefni.
Ætlað öllum þeim sem vilja styrkja sig enn frekar auk þess að hafa jákvæð áhrif á aðra.
Hæfniviðmið
Að aðstoða starfsfólk við að takast á við nýjar áskoranir og láta til sín taka.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og verkefni.Helstu upplýsingar
- Tími11. desember 2018, frá kl. 8:00-12:00.
- Lengd4 klst.
- UmsjónJóhann Ingi Gunnarsson
- StaðsetningMiðstöð símenntunar á Suðurlandi, Krossmóum 4.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsmenn Isavia.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatMæting.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 11.12.2018 | Árangursrík samskipti - trú á eigin getu | 08:00 | 12:00 | Jóhann Ingi Gunnarsson |