Grunnnám í reikningshaldi - staðnám eða fjarnám
Námið er einkum ætlað þeim sem ekki hafa starfað við færslu bókhalds en vilja auka við þekkingu sína í reikningshaldi. Einnig fyrir þá sem hyggjast sækja undirbúningsnám til viðurkenningar bókara og vilja rifja upp kunnáttu sína í bókhaldi og dýpka þekkingu sína.
Námið byggir á meginreglum í reikningshaldi. Unnið er út frá lagaumhverfi á Íslandi og horft til aðferða sem viðhafðar eru á bókhaldsstofum almennt. Námið styrkir grunnþekkingu þeirra sem vilja öðlast aukinn skilning á bókhaldi.
Lögð er áhersla á verklegar æfingar í náminu. Verklegar æfingar í Excel verða því í hverjum kennsluhluta til að auka á færni nemenda að tileinka sér efni námskeiðsins.
Hægt er að sækja námið bæði í fjarnámi og staðnámi.
Námið er eitt misseri. Kennsla hefst mið. 11. mars og lýkur miðvikudaginn 8. apríl.
Samtals 52 klukkustundir.
Stundatafla. (Með fyrirvara um breytingar)
Umsóknarfrestur er til 9. mars 2020.
Frekari upplýsingar gefur Hulda Mjöll Hauksdóttir, verkefnastjóri námsins, netfang: hulda@hi.is, sími: 525-4924. Hulda er með viðtalstíma alla virka daga frá kl. 9:30 - 11:30.
Fyrirkomulag umsóknar:
Áhugasamir skrá sig hjá Starfsmennt sem sendir umsóknina til EHÍ. Hulda verkefnastjóri hjá EHÍ tekur við umsókninni og setur sig í samband við umsækjanda.
Athugið að Starfsmennt greiðir einu sinni fyrir hvern félagsmann á hvert námskeið.
Nái félagsmaður ekki að ljúka námskeiði sem Starfsmennt hefur greitt fyrir hann og hyggst endurtaka það er bent á starfsmenntasjóði stéttarfélaga.
Hæfniviðmið
Að auka fræðilega og hagnýta þekkingu nemenda í reikningshaldi og hæfni til að beita henni í starfi.
Fyrirkomulag
Námið er án námsmats til einkunna og eininga. Það byggir mikið á verklegum æfingum.
Helstu upplýsingar
- TímiKennsla hefst miðvikudaginn 11. mars og lýkur miðvikudaginn 8. apríl. Umsóknarfrestur er til 2. mars
- Lengd52 klst.
- UmsjónSnorri Jónsson, viðskiptafræðingur MBA og Master of Accounting and Auditing.
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands að Dunhaga 7, 107 Reykjavík.
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurEingöngu fyrir félagsmenn Starfsmenntar sem vilja auka við þekkingu sína í reikningshaldi.
- Gott að vitaEingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
- Mat90% mæting og verkefnaskil
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttirsolborg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
11.03.2020 | Reikningshald | Snorri Jónsson |