Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu - Samskiptastílar - HÓPUR 3

Öll erum við einstök en samt svo lík. Munurinn sem er á okkur veldur því m.a. að okkur gengur misjafnlega að ná til sumra en annarra. Lykilatriði er að skilja hvernig við höfum samskipti. Það auðveldar öll samskipti að vita hvernig fólk hegðar sér og af hverju það gerir það sem það gerir. 
Ein þekktasta aðferðin til greiningar á samskiptastílum er byggð á kenningu Carl Gustaf Jung um sálfræðilegar týpur. En sú kenning gefur innsýn í hegðun og samskiptamáta fólks. Gerð er greinarmunur á 16 sálfræðilegum týpum útfrá fjórum þáttum sem eru Extrovert-Introvert, Sensing-Intuition, Thinking-Feeling og Judging-Perceiving. Þekking á þessum eðlislæga mismun milli einstaklinga opnar nýjar víddir í samskiptum og auðveldar skilning í umburðarlyndi og árangur í samskiptum.

Samskipti við vinnufélaga, ættingja, maka og viðskiptavini verða aldrei eins eftir þetta námskeið.

Hæfniviðmið

Aukinn skilningur á eigin samskiptastíl og annarra.

Þekking á algengum vandamálum í samskiptum.

Meiri þekking á eðlislægum styrkleikum.

Þekkja leiðir til vinna með ólíku fólki.

Meira umburðarlyndi og ánægjulegri samskipti.

Fyrirkomulag

Á námskeiðinu svara þátttakendur stuttum spurningalista, fluttur er fyrirlestur um kenninguna og farið er í æfingar sem draga fram mismuninn milli einstaklinganna. 

Námskeiðinu er skipt í 2 hluta, 2 klst. x viku (2 vikur).

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Fyrri hluti: fim. 21. mars kl. 08:30 - 10:00 Seinni hluti: fim. 28. mars kl. 08:30 - 10:00
  • Lengd
    4 klst.
  • Umsjón
    Eyþór Eðvarðsson, M.A. í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf.
  • Staðsetning
    Hlíðasmára 1, 201 Kópavogi.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað starfsfólki Sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er ætlað starfsfólki Sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(at)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
21.03.2019Samskiptastílar - MBTI08:3010:30Eyþór Eðvarðsson, M.A. í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf.
28.03.201908:3010:30Eyþór Eðvarðsson