Akureyri - Skjalastjórnun í Office365
Ein helsta áskorunin í vinnuumhverfinu í dag er skipulag og umsjón með upplýsingum. Flestir geta tekið undir það að flæði upplýsinga og gagna hefur sjaldan verið meira.
Námskeiðið er góður undirbúningur fyrir þá sem vilja og þurfa að skilja hvernig högun skjala og upplýsinga er háttað í Office 365/SharePoint. Grunnatriðin sem farið er í gegnum er skipulag upplýsinga, s.s. skjala, miðlægra gagna, verkferla og samskipta.
Leiðbeinandi - Sigurjón Hákonarson
Sigurjón hefur áralanga reynslu af ráðgjöf og þróun lausna í upplýsingatæknigeiranum. Helstu áhuga- og viðfangsefni eru betri lausnir til samvinnu og verkefnastjórnunar.
Sigurjón var áður aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík og kenndi þar hugbúnaðarverkfræði meðal annars. Hann var meðstofnandi Verkefnastjórnunarakademíunnar sem kenndi röð fyrirlestra í verkefnastjórnun hjá Opna Háskólanum áður en MPM námið varð til.
Í nokkur ár hefur Sigurjón séð um kennslu á SharePoint og Office 365 hjá Prómennt. Hann er með M. Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands.
Hæfniviðmið
Skilja hvaða möguleikar eru í boði í Office 365 með tilliti til skjalastjórnunar og upplýsingahögunar
Fá yfirsýn á hvernig ég skipulegg vinnuna mína í Office 365
Hvernig set ég upp skjalastjórnun í Office 365
Hvernig setjum við upp upplýsingahögun í Office 365
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, verkefni, þátttaka.Helstu upplýsingar
- TímiFimmtudaginn 23. jan. kl. 13:00 - 16.00.
- Lengd3 klst.
- UmsjónSigvaldi Óskar Jónsson.
- StaðsetningSÍMEY - Þórsstíg 4, 600 Akureyri.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurHentar öllum þeim sem vinna í Office 365.
- Gott að vitaEingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig SÍMEY.
- MatMæting og verkefnavinna.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia@smennt.is5500060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
23.01.2020 | Lærðu að koma á skipulagi og setja upp högun upplýsinga (Information Architecture) í Office 365/SharePoint. | 13:00 | 16:30 | Sigurjón Hákonarson. |