Þróttur/Kópavogur: Vinnupersónuleikar Hópur 2

Ein af merkilegri kenningum um samstarf í hópum er kenningin um hóphlutverk eftir breska sálfræðinginn Meredith Belbin. Belbin hefur um árabil rannsakað hópa og hvað það er sem gerir þá árangursríka. Bók hans, Management Teams, hefur verið nefnd m.a. af Financial Times sem ein af fimmtíu bestu bókum um stjórnun frá upphafi. Belbin greinir átta hlutverk sem einstaklingar í hópum virðast ganga í. Hver hópur hefur þörf fyrir ákveðna blöndu af þessum átta hlutverkum til að geta skilað árangri. Þetta þýðir til dæmis að hópur framúrskarandi einstaklinga getur skilað lélegum árangri ef ekkert jafnvægi er í samsetningu hlutverkanna. Á sama hátt geta hópar sem myndaðir eru af einstaklingum sem fyrirfram eru ekki taldir líklegir til stórverka náð mjög góðum árangri ef hlutverkin eru í jafnvægi.


Belbin greinir á milli átta hóphlutverka og flestir hafa aðeins tök á tveimur eða þremur hlutverkum. Aðeins í þeim hlutverkum finnur fólk sig og nær að skila góðu og ósviknu framlagi til hópsins.


Á námskeiðinu eru teknir fyrir mismunandi vinnupersónuleikar og hvernig þeir starfa saman. Þátttakendur greina eigið hóphlutverk eða vinnupersónuleika og samstarfsmanna. Einnig er farið í helstu einkenni skilvirkra hópa.

Hæfniviðmið

Að öðlast innsýn í eigin vinnupersónuleika og annarra.

Að öðlast skilning á algengum samstarfsörðugleikum.

Að ná meiri árangri í hópstarfi.

Að ná betri innsýn í styrkleika og veikleika samstarfsmanna.

Fyrirkomulag

Spurningalisti Belbin.
Fyrirlestur.
Umræður.
Virk þátttaka.


Helstu upplýsingar

  • Tími
    Þriðjudaginn 22. jan. kl. 10:30 - 13:30.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Eyþór Eðvarðsson, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun efh.
  • Staðsetning
    Fagralundi, Furugrund 83, 200 Kópavogi.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Þetta námskeið er ætlað þeim starfsmönnum Kópavogsbæjar sem boðaðir hafa verið á það.
  • Gott að vita
    Þetta námskeið er ætlað þeim starfsmönnum Kópavogsbæjar sem boðaðir hafa verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia@smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
22.01.2019Vinnupersónuleikar.10:3013:30Eyþór Eðvarðsson, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun efh.