Word ritvinnsla, framhald - Vefnámskeið

Word framhaldsnámskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa lokið Word grunnámskeiðinu eða hafa haldbæra grunnþekkingu á forritinu.

Útskýrt er hvernig hægt er að nota ritvinnsluforritið Microsoft Word til að leysa margvísleg verkefni. Byrjað er að kynna grunnþætti ritvinnslu eins og hvernig hægt er að móta texta, setja inn myndir og aðlaga þær að texta. Unnið með frumskjöl (templates), töflur og myndrit. Fjallað er um vefsíðugerð með Word og hvernig hægt er að tengja saman ritvinnsluskjal og gagnaveitu til að útbúa persónulega fjöldasendingu (Mail merge).

Námskeiðið fer allt fram í fjarnámi með aðferðum sem allir ráða við. Nemendur fá í upphafi sent kennsluhefti og leiðbeiningar en fá einnig reglulega send námsgögn á meðan námskeiði stendur þ.m.t. kennslumyndbönd.

Námsþættir: 
  •  Mótahnappastikur. Móta textasnið - styles. Flytja inn gögn. Öryggisstillingar
  •  Leit og útlitsmótun. Aðalskjöl og undirskjöl. Kaflaskipti og mótunefnisyfirlits.
  •  Neðanmálsgreinar. Atriðisorðaskrár og myndaskrár, sjálfvirk og handvirkuppsetning.

Kennari hefur samband við alla skráða þátttakendur þann dag sem námskeið hefst. Það er þó opið fyrir skráningar alla fyrstu vikuna. 

Þátttakendur sækja alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins Bjartmars Huldusonar í gegnum þjónustusíma sem er opinn frá 10 - 20 virka daga. Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur í fjarnámi auk þess sem nemendur fá ríflegan stuðningstíma eftir að námskeiðinu lýkur.

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta nám er þér velkomið að hafa samband við Bjartmar Þór Hulduson í síma 788 8805 eða í netfangið kennari(at)nemandi.is.

Hæfniviðmið

Aukin færni í Word forritinu.

Færni til þess að setja upp stór skjöl og skýrslur.

Þekking til þess að nýta forritið til gagns í lífi og starfi.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið. Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt.

Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu.

Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið. Ef upp koma tafir hjá nemendum (varðandi skil á verkefnum t.d) er velkomið að hafa samband við kennara og taka upp þráðinn, ef það er gert innan árs frá skráningu.

Nemendur sækja alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum tölvupóst eða þjónustusíma 788 8805  sem er opinn 10-20 virka daga.


Helstu upplýsingar

  • Tími
    15. apríl. Stendur yfir í þjár vikur.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
  • Staðsetning
    Vefnámskeið.
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    33.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námið hentar öllum sem vilja bæta kunnáttu sína og færni í Word.
  • Gott að vita
    Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Aðstoð með tölvupósti og í þjónustusíma kl. 10-20 virka daga.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Verkefnaskil.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
15.04.2020Móta hnappastikur. Móta textasnið - styles. Flytja inn gögn. Öryggisstillingar.Bjartmar Þór Hulduson
14.04.2020Leit og útlitsmótun. Aðalskjöl og undirskjöl. Kaflaskipti og mótun efnisyfirlits.Bjartmar Þór Hulduson
21.04.2020Neðanmálsgreinar. Atriðaorðaskrár og myndaskrár, sjálfvirk og handvirk uppsetning.Bjartmar Þór Hulduson