Jafnlaunastaðall: III. Gerð verklagsreglna og annarra skjala í gæðakerfum
Skráningu (fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar) lýkur 16. jan. kl.10:00.
Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017 með breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Samkvæmt lögunum skal jafnlaunavottun byggjast á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85.
Með innleiðingu hans geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.
Skipulag og framsetning skjala í gæðakerfum er mikilvæg. Verklagsreglur, vinnulýsingar, gátlistar og eyðublöð eru skjalaform sem þekkt eru í gæðakerfum og gegna mikilvægum hlutverkum í framsetningu og skipulagi gæðastjórnunar.
Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á gerð verklagsreglna en einnig verður farið inn á hvernig best er að setja upp önnur skjöl gæðakerfis s.s. vinnulýsingar, eyðublöð og gátlista. Fjallað verður um það hvers vegna uppsetning þessara skjala þarf að vera með ákveðnum hætti og skýrð út sérstaða þessara skjala í skjalakerfum fyrirtækja.
Hæfniviðmið
Að öðlast færni til að setja fram verklagsreglur með þeim hnitmiðuðu lýsingum sem þurfa að koma fram í verklagsreglum.
Að fá skilning á skjölum í gæðakerfum.
Að öðlast skilning á því, með hvaða hætti skjöl gæðakerfis eru frábrugðin öðrum almennum skjölum.
Að geta að námskeiði loknu, sett fram verklagsreglu í hvaða gæðakerfi sem er.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð.
Helstu upplýsingar
- TímiMánudaginn 3. feb. kl. 13:00 - 16:00.
- Lengd3 klst.
- UmsjónGuðmundur S. Pétursson, rafmagnstæknifræðingur og ráðgjafi í gæða-og öryggismálum
- StaðsetningEndurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 107 Reykjavík.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er ætlað forstöðumönnum, mannauðsstjórum, gæðastjórum og öðrum þeim sem ætlað er að stýra eða gegna ábyrgðarhlutverki við innleiðingu .
- Gott að vitaStarfsmennt greiðir námskeiðið fyrir aðildarfélaga. Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
- MatMæting.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(at)smennt.is550 0060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
03.02.2020 | Jafnlaunastaðall: III. Gerð verklagsreglna og annarra skjala í gæðakerfum | 13:00 | 16:00 | Guðmundur S. Pétursson, rafmagnstæknifræðingur og ráðgjafi í gæða-og öryggismálum |