Vönduð íslenska - tölvupóstar og stuttir textar - Fjarnámskeið
Margir þurfa að senda tölvupóst eða skrifa stutta athugasemd í vefkerfi. Aðrir þurfa að taka saman greinargerð eða semja fréttatilkynningu. Texti verður til og lesandi þarf að taka hann trúanlegan.
Gríðarleg aukning hefur orðið í framleiðslu texta á undanförnum áratugum. Sífellt fleiri þurfa að semja ritaða texta, oftast fremur stutta, bæði í starfi og einkalífi. Í langflestum tilvikum eru textar samdir til þess að aðrir lesi þá. Nokkur lykilatriði sem hafa verður í huga eru tími, sjálfsöryggi, þekking á viðfangsefni, bygging texta, málfar og birting. Farið verður í nokkur helstu einkenni texta sem samdir eru á íslensku og þátttakendur þjálfaðir í að semja stutta texta, t.d. tölvupósta, efni á innri vefi, heimasíður og fréttabréf.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Formlega texta: Markmið og einkenni.
- Stíl sem hæfir efni og ýmis álitamál sem upp koma.
- Rétt mál og rangt, gott mál og vont.
- Tölvupósta, innri vefi, heimasíður og fréttabréf.
Ávinningur þinn:
- Þekking á helstu hjálpargögnum, bæði prentuðum og rafrænum.
- Aðferðir til þess að bæta ritun í smáu og stóru.
- Öryggi við ritun texta.
- Kynnast þátttakendum á námskeiði sem eru í svipuðum sporum.
Hæfniviðmið
Að auka þekkingu á helstu hjálpargögnum, bæði prentuðum og rafrænum.
Að læra aðferðir til þess að bæta ritun í smáu og stóru.
Að auka öryggi við ritun texta.
Að kynnast þátttakendum á námskeiði sem eru í svipuðum sporum.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og verkefni.Helstu upplýsingar
- TímiMiðvikudaginn 25. mars frá kl. 13:00-16:00.
- Lengd3 klst.
- UmsjónSigurður Konráðsson, prófessor í íslensku.
- StaðsetningFJARNÁMSKEIÐ
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÆtlað öllum sem vilja láta taka alvarlega texta sem frá þeim fara.
- Gott að vitaEingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.
- MatÞátttaka.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(at)smennt.is550 0060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
25.03.2020 | Vönduð íslenska - tölvupóstar og stuttir textar | Sigurður Konráðsson, prófessor í íslensku. |