Hvert flaug tíminn? - Betri tímastjórnun og skipulag á vinnustaðnum
Margir kannast við það að finnast þeir aldrei ná að ljúka verkefnunum sínum, að tíminn sé of knappur, að verkefnin séu of mörg eða stöðugar truflanir komi í veg fyrir að árangur náist. Þetta getur valdið álagi og þreytu hjá þeim ásamt togstreitu í samskiptum á vinnustaðnum. Á námskeiðinu er þátttakendum hjálpað að ná ákveðinni heildarsýn yfir vinnudaginn og vinnusvæðið sitt. Farið verður í hvað tíminn, í vinnunni eða heima, raunverulega fer og hvernig hægt er að forgangsraða verkefnum. Einnig verður skoðað hvernig hægt er að skapa tíma fyrir mikilvægustu verkefnin og jafnframt að takast á við ýmsar truflanir, s.s. tölvupósta og símtöl sem óhjákvæmilega setja oft mikið mark á vinnudaginn.
Í námskeiðinu verður m.a. farið í hvað felst í tímaþjófnaði, frestun, skipulagningu og áætlanagerð, fundum og fundarstjórn, að segja nei, jákvæðu hugarfari og sjálfstjórn.
Í námskeiðinu verður m.a. farið í hvað felst í tímaþjófnaði, frestun, skipulagningu og áætlanagerð, fundum og fundarstjórn, að segja nei, jákvæðu hugarfari og sjálfstjórn.
Hæfniviðmið:
Þátttakendur munu að námskeiðinu loknu:
• geta náð betri stjórn á vinnudeginum og eigin líðan í vinnunni
• geta greint núverandi nýtingu á eigin tíma
• geta forgangsraðað verkefnum út frá mikilvægi
• geta sett markmið og unnið skipulag og áætlanir úr frá þeim
• geta borið kennsl á ýmsar truflanir og tímaþjófa og beitt aðferðum til að draga úr áhrifum þeirra
Hæfniviðmið
Að efla tímastjórnun þátttakenda til að ná fram betri nýtingu á tímanum og meiri vellíðan. Að kenna þátttakendum að þekkja og fanga tímaþjófa og truflanir. Að efla skipulagsfærni starfsfólks.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður.Helstu upplýsingar
- Tími03. október 2019 13:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónIngrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði (MAPP)
- StaðsetningStarfsmennt, Skipholti 50b, 3.h. 105 Reykjavík kl 13:00 - 16:00
- TegundStaðnám
- Verð15.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.
- Gott að vitaAðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatÞátttaka og virkni á námkeiðinu.
- Tengiliður námskeiðsJúlía Hrönn Guðmundsdóttirjulia@smennt.is5500060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 03.10.2019 | Hvert flaug tíminn? - Betri tímastjórnun og skipulag á vinnustaðnum | 13:00 | 16:00 | Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði (MAPP) |