Tölvuleikni - Windows stýrikerfið - Vefnámskeið

Námskeiðið hefst á undirbúningsviku. Á meðan á henni stendur er enn mögulegt að skrá sig og bætast í hópinn. Vegna þessa breytist dagsetning námskeiðs á vefnum.  

Á námskeiðinu er fjallað um viðmót og virkni Windows stýrikerfisins.

Námið byggist að mestu upp af hagnýtum verkefnum og æfingaverkefnum. Útskýrt er hvernig gluggar eru meðhöndlaðir og farið yfir hlutverk myndræns notendaviðmóts. Einnig er útskýrt hvernig hægt er að sníða umhverfið að eigin þörfum.

Farið er í skráarvinnslu; hvernig unnið er með möppur, hvernig skipt er um nafn á þeim, raðað eftir mismunandi forsendum o.s.frv. Unnið er með einföld forrit, skrár myndaðar, vistaðar, færðar úr einni möppu í aðra, þeim eytt og síðan útskýrt hvernig hægt er að endurheimta skrár sem hefur verið eytt.  

Farið er í notkun stjórnborðs til að móta notendaviðmótið að þörfum nemenda og ýmis algeng hjálparforrit (apps) eru skoðuð.

Námskeiðið er vefnámskeið. Kennari hefur samband við alla skráða þátttakendur þann dag sem námskeið hefst. Það er þó opið fyrir skráningar alla fyrstu vikuna. 

Þátttakendur sækja svo alla aðstoð við námið til kennarans, Bjartmars Þórs Huldusonar, í gegnum tölvupóst og þjónustusíma sem er opinn frá kl. 10.00 - 20.00 alla virka daga.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta nám er þér velkomið að hafa samband við Bjartmar Þór Hulduson í síma 788 8805 eða í netfangið kennari(at)nemandi.is.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Tölvuskólann Nemandi.is

Hæfniviðmið

Að styrkja færni þátttakenda í almennri tölvuleikni í starf og leik.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið. Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt.

Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu.

Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið. Ef upp koma tafir hjá nemendum (varðandi skil á verkefnum t.d) er velkomið að hafa samband við kennara og taka upp þráðinn, ef það er gert innan árs frá skráningu.

Nemendur sækja alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum tölvupóst eða þjónustusíma 788 8805 sem er opinn 10-20 virka daga.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    21. jan. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
  • Staðsetning
    Vefnámskeið.
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    33.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Allir sem vilja efla færni sína í almennri tölvuleikni.
  • Gott að vita
    Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Aðstoð með tölvupósti og í þjónustusíma kl. 10-20 virka daga.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Verkefnaskil.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
21.01.2020Tölvuleikni æfð og notendaviðmót tölvunar skoðað og mótað að þörfum.Bjartmar Þór Hulduson
24.01.2020Skrár og skipulag tölvunnar. Almenn skráarvinnsla. Öryggisafritun með OneDrive.Bjartmar Þór Hulduson
31.01.2020Stjórnborð og stillingar tölvunnar. Hjálparforrit (apps) og notkun þeirra.Bjartmar Þór Hulduson