Jafnlaunastaðall: V. Launagreining

Skráningu (fyrir aðildarfélaga Starfsmenntar) lýkur 30.jan. kl.10:00.

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017 með breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Samkvæmt lögunum skal jafnlaunavottun byggjast á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85.

Við innleiðingu staðalsins er gert ráð fyrir að a.m.k. ein launagreining liggi fyrir. Fyrirtæki og stofnanir þurfa síðan að framkvæma kerfisbundnar úttektir reglulega eftir innleiðingu og kanna þannig hvort að kynbundinn launamunur sé til staðar. 

Á námskeiðinu er fjallað um ferli launagreiningar og viðeigandi aðferðir kynntar, þ.e. aðferð minnstu kvaðrata (línuleg aðhvarfsgreining) og meðallaunagreiningu. Einnig er kynnt hvernig halda megi utan um launagögn og viðbótarupplýsingar um kjör starfsmanna í mannauðskerfum og gagnaskrám. Greint er frá skilgreiningum á launum og launatengdum þáttum og skoðaðir þeir þættir sem hafa áhrif á launamyndun fyrirtækja og stofnana. Ná þarf utan um sem flesta þætti sem hafa áhrif á laun til að fá sem réttasta mælingu á launamun. Einnig er fjallað um hvernig rýna megi í niðurstöður launagreininga og mikilvægi þess að fyrirtæki og stofnanir setji fram áætlun um leiðréttingar á óútskýrðum launamun, ef hann er til staðar.

Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að hafa öðlast grunnþekkingu á framkvæmd launagreininga, hverju þarf að huga að og hvað ber að varast.

Hæfniviðmið

Að öðlast skilning á launagreiningu, tilgangi hennar og aðferðum.

Að þekkja þá þætti sem hafa áhrif á launamyndun.

Að átta sig á hvað þarf að hafa í huga við framkvæmd launagreininga og hvað beri að varast.

Að kynnast helstu tækjum til launagreininga.

Að þekkja ferli launagreiningar og verklag.

Að öðlast grunnþekkingu á framkvæmd einfaldra launagreininga og áætlunum um leiðréttingar á óútskýrðum launamun.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er hluti af röð fimm sjálfstæðra námskeiða sem byggjast á námsskrá velferðarráðuneytisins og er heppilegt að taka námskeiðin í tímaröð.


Helstu upplýsingar

  • Tími
    Mánudaginn 17. feb. kl. 13:00 - 16:00.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 107 Reykjavík.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað forstöðumönnum, mannauðsstjórum, gæðastjórum og öðrum þeim sem ætlað er að stýra eða gegna ábyrgðarhlutverki við innleiðingu .
  • Gott að vita
    Starfsmennt greiðir námskeiðið fyrir aðildarfélaga.Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    smennt(at)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
17.02.2020Jafnlaunastaðall: V. Launagreining13:0016:00Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar.