Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu - Tímastjórnun - Hópur II

Á námskeiðinu fá þátttakendur innsýn í hvernig þeir verja tíma sínum í dag og læra að forgangsraða verkefnum. Farið er í mikilvægi þess að skapa tíma fyrir mikilvægustu verkefnin með góðri skipulagningu og takast á við truflanir af ýmsum toga, eins og símtöl og tölvupóstinn. Tekin eru fyrir atriði eins og algengir tímaþjófar, frestun, skipulagning og áætlanagerð, fundir og fundarstjórn, að segja nei, jákvætt hugarfar og sjálfsstjórn.
 

Hæfniviðmið

Að öðlast færni í að forgangsraða verkefnum

Að öðlast færni í að segja nei og minnka álag og stress

Að geta skipulagt tíma sinn betur og geta tekist á við daglegt áreiti

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Fimmtudaginn 23. janúar 2020, kl. 8:30-10:30.
  • Lengd
    2 klst.
  • Umsjón
    Ingrid Kuhlman sérfræðingur hjá Þekkingarmiðlun.
  • Staðsetning
    Hlíðasmára 1, 201 Kópavogi.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsmenn Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
  • Gott að vita
    Aðeins fyrir starfsfólk Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
23.01.2020Tímastjórnun08:3010:30Ingrid Kuhlman