Þróttur/Kópavogur: Áfram ég! Hópur 2

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að styrkja þátttakendur á leið þeirra til aukinnar velgengni í lífinu.

1. Samskipti.
Í samskiptum er sjálfsmeðvitund mikilvæg, að gefa sér tíma, hlusta, hrósa og gagnrýna á uppbyggilegan hátt og semja þannig að allir gangi sáttir frá borði.
Unnið með: Samskiptaform, samningatækni, áhrif og mikilvægi hegðunar í samskiptum.

 2. Markmiðasetning.
Til að ná árangri þarf að skipuleggja sig og setja sér markmið. Hvernig geri ég betur?
Unnið með: DUMB aðferðafræðina, 80/20% regluna, tímastjórnun, aga og vilja. Leiðin út úr fullkomnunaráráttunni.

3. Sjálfsefling.
Ferðalag með fyrirheit þar sem vilji og agi kallast á og skila þér á áfangastað.
Unnið með: Styrkleika, sjálfstraust, áskoranir og þroskaferli.

4. Heilsa.
Góð andleg og líkamleg heilsa er grunnurinn að því að geta gert það sem ég vil í lífinu.
Unnið með: Mataræði, hreyfingu, hugarfar og hamingju.

Hæfniviðmið

Að gera þátttakendur hæfari í að koma sér á framfæri.

Að gera þátttakendum kleift að tileinka sér ákveðna hugsun, hegðun og leiðir til að efla sig sem persónur.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður, verkefni, dæmisögur og myndskeið. Á þessu námskeiði er gert ráð fyrir að þátttakendur vinni verkefni milli skipta auk lokaverkefnis.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    2 skipti: miðvikudaginn 23. janúar og þriðjudaginn 5. febrúar kl. 10:30 - 13:30.
  • Lengd
    6 klst.
  • Umsjón
    Ragnar Matthíasson mannauðsráðgjafi - MBA og MSc. í mannauðsstjórnun.
  • Staðsetning
    Fagralundi, Furugrund 83, 200 Kópavogi.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Þetta námskeið er ætlað þeim starfsmönnum Kópavogsbæjar sem boðaðir hafa verið á það.
  • Gott að vita
    Þetta námskeið er ætlað þeim starfsmönnum Kópavogsbæjar sem boðaðir hafa verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(at)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
23.01.2019Áfram ég!10:3013:30Ragnar Matthíasson
05.02.2019Áfram ég!10:3013:30Ragnar Matthíasson