Að auka seiglu og stjórna eigin líðan - Sauðárkrókur
Árið 2002 kom út metsölubók eftir Karen Reivich Ph.D. og Andrew Shatté Ph.D. sem nefnist The Resilience Factor.
Í bókinni segja höfundar frá víðtækum rannsóknum sínum á því hvernig framúrskarandi einstaklingar takast á við mótlæti og erfiðleika í leik og starfi. Það mikilvægasta er hvernig þeir hugsa og hvernig þeir vinna úr þeim atburðum sem gerast í kringum þá. Á fræðimáli kallast þessi eiginleiki „seigla“ eða á ensku „resilience“.
Við þurfum öll á seiglu að halda til að ná okkur eftir bakslög og takast á við daglegar hindranir.
Rannsóknir sýna að við getum breytt því hvernig okkur líður með því að breyta hugsunum okkar því að það sem stjórnar hegðun okkar er ekki það sem gerast í kringum okkur heldur hvernig við túlkum það sem gerist. Þetta kallast hugræn atferlismeðferð eða HAM.
Hægt er að auka seigluna með því að breyta hugsunum sínum.
Á námskeiðinu er farið í sjö þætti seiglu, hvernig þeir birtast og hvaða áhrif þeir hafa á einstaklinga og árangur. Farið er í hagnýtar æfingar sem auka seiglu og gefa innsýn í eigin hugsanir og orsakagreiningar.
Meðal þess sem er tekið fyrir á námskeiðinu:
- Sjö þættir seiglu.
- Hugræn atferlismeðferð.
- Mat á aðstæðum og orsökum.
- Áhrif hugsana á hegðun.
- Núvitundaræfingar.
- Tæki og tól til að auka seiglu.
- Að vinna með styrkleika og veikleika.
Hæfniviðmið
Betri innsýn í eigin hugsanir.
Aukin seigla.
Aukin hæfni í að takast á við mótlæti.
Betri lausn vandamála.
Betri skilningur á sjálfum sér.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur.Hagnýt verkefni.
Umræður.
Virk þátttaka.
Helstu upplýsingar
- Tími2 skipti: 11. nóv., mánudag kl. 18:00-21:30 18. nóv., mánudag kl. 18:00-21:30
- Lengd7 klst.
- UmsjónIngrid Kuhlman, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði
- StaðsetningFarskólinn - Faxatorg, 550 Sauárkrókur.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- Gott að vitaEingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Farskólanum (Miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra).
- MatMæting og verkefnavinna.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia@smennt.is5500060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 11.11.2019 | Að auka seiglu og stjórna eigin líðan. | 18:00 | 21:30 | Ingrid Kuhlman, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði |
| 18.11.2019 | 18:00 | 21:30 |