Tollstjóri - Svörun erinda - Hópur B

Á námskeiðinu verður farið í þau viðmið sem embættið setur við svörun erinda. Farið verður í vinnureglur við svörun skriflegra erinda og erinda í tölvupósti eins og t.d. forgangsröðun erinda, uppsetningu tölvupósts / bréfa, viðmið um hvenær og hvernig skriflegu erindi / tölvupósti skuli svarað, vistun gagna, ofl. Auk þess verður farið yfir vinnureglur við símsvörun og þá þætti sem skipta máli eins og raddbeitingu, samskipti í gegnum síma, að senda símtal á aðra, skilaboð og meðhöndlun þeirra, ofl.

Hæfniviðmið

Að öðlast leikni á sviði samskipta og upplýsingamiðlunar innan sem utan embættisins.

Að þekkja viðmið embættis við símsvörun og notkun tölvupósts.

Að vera meðvitaðir um mikilvægi þess að veita skjóta og góða þjónustu.

Að átta sig á aðalatriðum erindis og þekki hvert á að beina viðskiptavinum eftir eðli erindis.

Að þekkja algengustu spurningar og svör sem embættinu berast.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og verkefni.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    6., 11. og 13. des. Frá 8:15 - 10:15 alla daga. Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum.
  • Lengd
    6 klst.
  • Umsjón
    Jóhanna Lára Guðbrandsdóttir og Valgerður Sigurðardóttir
  • Staðsetning
    Tryggvagata 19, 101 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsmenn Tollstjóra
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað starfsmönnum Tollstjóra.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    90% mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg(hjá)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
06.12.2018Svörun erinda08:1510:15Valgerður Sigurðardóttir
11.12.2018Svörun erinda08:1510:15Valgerður Sigurðardóttir
13.12.2018Svörun erinda08:1510:15Jóhanna Lára Guðbrandsdóttir