Út fyrir boxið - Nýsköpun og lausnamiðuð hugsun
Samkvæmt könnun sem IBM gerði með því að spyrja yfir 1.500 stjórnendur frá 60 löndum og í 33 mismunandi starfsstéttum, þá er sköpunargleði það sem við þurfum til að ná árangri. Rannsakendur tala um að sköpunargleði sé forsenda nýsköpunar, samkeppnishæfni og áframhaldandi tilveru fyrirtækja og höfundurinn Daniel Pink talar um í bók sinni A Whole New Mind að framtíðin muni tilheyra fólki sem er skapandi. Þá eru nýsköpun og lausnamiðuð hugsun hluti þeirrar hæfni sem við þurfum að tileinka okkur til að ná árangri í starfi með tilliti til áhrifa af fjórðu iðnbyltingunni.
Í námskeiðinu verður farið í hvað felst í skapandi og gagnrýnni hugsun og hvernig þetta tvennt styður við lausn hinna ýmsu verkefna, getur auðveldað starfið og gert það skemmtilegra. Framkvæmdar verða fjölbreyttar æfingar sem þjálfa upp skapandi og gagnrýna hugsun. Kynntar verða aðferðir og verkfæri sem nýtast við lausn verkefna.
Hæfniviðmið:
Þátttakendur munu að námskeiðinu loknu:
- skilja hvað átt er við þegar talað er um skapandi og gagnrýna hugsun
- geta tekið þátt í lausn verkefna sem krefjast skapandi og gagnrýnnar hugsunar
- þekkja aðferðir og leiðir sem efla skapandi og gagnrýna hugsun
- skilja hvernig hægt er að sameina aðferðir skapandi og gagnrýnnar hugsunar við lausnaleit
- geta valið og beitt skapandi aðferðum við lausn verkefna
Hæfniviðmið
Að gefa þátttakendum innsýn í hvernig þjálfa má og nýta skapandi og gagnrýna hugsun í starfi. Eitt af því sem einkennir árangursríkar stofnanir og fyrirtæki er hæfileiki starfsfólksins til að greina og leysa verkefni með fjölbreyttri og skapandi nálgun en fjórða iðnbyltingin kallar á þá hæfni í síauknum mæli. Sköpunargleði og gagnrýn hugsun nýtist einnig í daglegu lífi við úrlausn ýmissa verkefna og ákvarðanatöku.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og verkefni.Helstu upplýsingar
- TímiMiðvikudagurinn 3. júní kl 9:00 - 12:00.
- Lengd3 klst.
- UmsjónBirna Dröfn Birgisdóttir, doktorsnemi og stjórnenda markþjálfi
- StaðsetningStarfsmennt, Skipholti 50b, 3.h. 105 Reykjavík
- TegundStaðnám
- Verð15.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurOpið öllum. Námskeiði er aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.
- Gott að vitaAðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.
- MatÞátttaka og virkni á námskeiðinu.
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttirsolborg@smennt.is5500060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
03.06.2020 | Út fyrir boxið - Nýsköpun og lausnamiðuð hugsun | 09:00 | 12:00 | Birna Dröfn Birgisdóttir, doktorsnemi og stjórnenda markþjálfi |