Áfram Ég! Sex lyklar að velgengni - ÍSAFJÖRÐUR

ATH! Námskeiði frestað þar sem flug kennarans var aflýst - námskeiðið verður haldið föstud. 7. des. sama tíma.

 

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að styrkja þátttakendur í sex lykilskrefum á leið þeirra til aukinnar velgengni í lífinu.

1. Samskipti.
Í samskiptum er sjálfsmeðvitund mikilvæg, að gefa sér tíma, hlusta, hrósa og gagnrýna á uppbyggilegan hátt og semja þannig að allir gangi sáttir frá borði.
Unnið með: Samskiptaform, samningatækni, áhrif og mikilvægi hegðunar í samskiptum.

 2. Markmiðasetning.
Til að ná árangri þarf að skipuleggja sig og setja sér markmið. Hvernig geri ég betur?
Unnið með: DUMB aðferðafræðina, 80/20% regluna, tímastjórnun, aga og vilja. Leiðin út úr fullkomnunaráráttunni.

3. Sjálfsefling.
Ferðalag með fyrirheit þar sem vilji og agi kallast á og skila þér á áfangastað.
Unnið með: Styrkleika, sjálfstraust, áskoranir og þroskaferli.

4. Fjármál.
Þarf ég að vera fátækur ef ég verð ekki ríkur?
Unnið með: Viðhorf til peninga, yfirsýn, skipulag, markmið.

5. Heilsa.
Góð andleg og líkamleg heilsa er grunnurinn að því að geta gert það sem ég vil í lífinu.
Unnið með: Mataræði, hreyfingu, hugarfar og hamingju.

6. Framkoma.
Góð og örugg framkoma lætur mér líða betur í eigin skinni, styrkir mig sem einstakling og hvetur fólk til liðs við mig.
Unnið með: Grunnatriði í framkomu og að öðlast kjark til að tjá mig fyrir framan fólk.

Þeir sem vilja afla sér nánari upplýsinga um námskeiðið er bent á að hafa samband við Ragnar hjá RM ráðgjöf í síma 898 3851 eða í gegnum netfangið ragnar@rmradgjof.is.

Hæfniviðmið

Að gera þátttakendur hæfari í að koma sér á framfæri.

Að gera þátttakendum kleift að tileinka sér ákveðna hugsun, hegðun og leiðir til að efla sig sem persónur.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður, verkefni, dæmisögur og myndskeið. Á þessu námskeiði er gert ráð fyrir að þátttakendur vinni verkefni milli skipta auk lokaverkefnis.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Föstiudaginn 30. nóvember kl. 08:00 - 16:00.
  • Lengd
    8 klst.
  • Umsjón
    Ragnar Matthíasson mannauðsráðgjafi - MBA og MSc. í mannauðsstjórnun.
  • Staðsetning
    Fræðslumiðstöð Vestfjarða Suðurgata 12, 400 Ísafjörður.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðildarfélagar Starfsmenntar sem vilja efla, þroska og bæta árangur sinn í lífi og starfi.
  • Gott að vita
    Takmarkaður sætafjöldi.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(at)smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
30.11.2018Áfram Ég! Sex lyklar að velgengni08:0016:00Ragnar Matthíasson
30.11.2018Áfram Ég! Sex lyklar að velgengni08:0016:00Ragnar Matthíasson