Samgöngustofa - Er gaman í vinnunni? Áskoranir og starfsánægja
Vinnan er stór hluti af lífi okkar og vellíðan á vinnustað skiptir máli fyrir lífsgæði okkar almennt.
Á námskeiðinu er fjallað um viðhorf til verkefna, vinnustaðarins og vinnufélaga. Rætt er um samskiptahætti, hollustu, tilhlökkun og skipulag verkefna. ,,Hvaða strauma sendir þú frá þér?“ er spurning sem þátttakendur vinna með.
Sérstaklega er unnið með hrós og endurgjöf og fleiri leiðir til að hlúa að góðu andrúmslofti / vinnustaðamenningu. Endurteknar breytingar og aukið álag getur komið niður á starfsánægju ef ekki er unnið með líðan og viðhorf starfsmanna.
Ánægðir starfsmenn sem hafa metnað fyrir hönd vinnustaðarins skila betri verkum og sterk liðsheild gerir lífið skemmtilegra!
Hæfniviðmið
Að bæta viðhorf til verkefna, vinnustaðarins og vinnufélaga.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og verkefni.Helstu upplýsingar
- Tími19. desember 2018 frá kl. 9-12.
- Lengd3 klst.
- UmsjónSigríður Hulda Jónsdóttir
- StaðsetningÁrmúla 2, 108 Reykjavík.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurFyrir þá sem vilja bæta samskiptahætti og skipulag verkefna.
- Gott að vitaNámskeiðið er aðeins fyrir starfsmenn Samgöngustofu.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- Mat100% mæting.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg@smennt.is550 0060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 19.12.2018 | Er gaman í vinnunni? Áskoranir og starfsánægja. | 09:00 | 12:00 | Sigríður Hulda Jónsdóttir |