Word ritvinnsla - grunnur - Vefnámskeið

Kennt er hvernig hægt er að nota ritvinnsluforritið Microsoft Word til að leysa margvísleg verkefni.  

Notendaviðmót og virkni eru skýrð ásamt því að farið er yfir helstu skipanir og verkfæri. Farið er í grunninn á útlitsmótun texta og uppsetningu hans, og prentun skoðuð.

Myndir og myndefni eru sett inn og aðlagað að texta. Unnið með töflur og inndrátt, frumskjöl (templates) og gröf og töflur úr Excel innflutt.

Námskeiðið er vefnámskeið. Kennari hefur samband við alla skráða þátttakendur þann dag sem námskeið hefst. Það er þó opið fyrir skráningar alla fyrstu vikuna. 

Þátttakendur sækja svo alla aðstoð við námið til kennarans, Bjartmars Þórs Huldusonar, í gegnum tölvupóst og þjónustusíma sem er opinn frá kl. 10.00 - 20.00 alla virka daga. 

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta nám er þér velkomið að hafa samband við Bjartmar Þór Hulduson í síma 788 8805 eða í netfangið kennari(at)nemandi.is.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Tölvuskólann Nemandi.is

Hæfniviðmið

Að byggja upp góða grunnfærni í Word forritinu.

Að auka þekkingu til að forritið nýtist þáttakendum til fulls.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið. Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu. Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið. Nemendur sækja alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum tölvupóst eða þjónustusíma 788 8805 sem er opinn 10-20 virka daga.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    24. sept. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
  • Staðsetning
    Vefnámskeið.
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    33.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Allir sem vilja nýta kosti Word til fullnustu.
  • Gott að vita
    Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Aðstoð með tölvupósti og í þjónustusíma kl. 10-20 virka daga.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Verkefnaskil.
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is
    5500060

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
24.09.2019Notendaviðmót Word. Opna sköl, vinna með texta og rétt vistun. Prentun skjala.Bjartmar Þór Hulduson
01.10.2019Útlitsmótun texta. Helstu aðgerðir í ritvinnslu. Töflur í Word. Setja inn haus og fót.Bjartmar Þór Hulduson
08.10.2019Innsetning og mótun myndefnis. Sniðskjöl. Dálkhnappur, töflur og innflutt gröf og töflur.Bjartmar Þór Hulduson