Almennt tölvunám, grunnur - Vefnámskeið
Námskeiðið hefst á undirbúningsviku. Á meðan á henni stendur er enn mögulegt að skrá sig og bætast í hópinn. Vegna þessa breytist dagsetning námskeiðs á vefnum.
Námskeiðið Tölvur og tölvunotkun er kennt í formi fjarnáms og hefur hlotið einstaklega góðar undirtektir. Þetta er 10 vikna (60 klst.) tölvunámskeið og eru engar forkröfur á þekkingu gerðar. Námið fer fram með aðferðum fjarnáms sem allir ráða við. Auk þess er nemendum fylgt eftir símleiðis og þeir hafa aðgang að þjónustusíma sem er opinn frá 10.00-20.00 alla virka daga. Athugið að upptalning á efnistökum námsgreina hér á vefnum er ekki tæmandi.
1. Tölvuleikni - Windows stýrikerfið
Fjallað um viðmót og virkni Windows stýrikerfisins, kennt er að nota músina, valmyndir og hvernig möppur eru myndaðar. Unnið er með einföld forrit og skrár.
2. Ritvinnsla Word
Kynntir eru grunnþættir í ritvinnslu, móta texta og setja inn myndir, töflur og myndrit. Fjallað verður um vefsíðugerð með Word og persónulegar fjöldasendingar (Mail merge).
3. Töflureiknir Excel
Unnið með útreikninga eins og prósentureikning, meðaltal og áætlanagerð. Einnig er fjallað um hvernig gögn eru flutt inn og úr Excel í önnur forrit.
4. Internetið og tölvupóstur
Útskýrt hvernig forritið vinnur og hvernig leitarvélar eru notaðar. Vefpóstur kynntur og hvernig hægt er að afrita myndir og texta af netinu.
5. Upplýsingatækni
Grundvallarhugtök í upplýsingatækni kynnt, fjallað um tölvunotkun, upplýsingasamfélagið, hverju skal huga að áður en tölva er keypt, gagnavernd og vinnustellingar við tölvu.
Nánari námskeiðslýsing.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta nám er þér velkomið að hafa samband við Bjartmar Þór Hulduson í síma 788 8805 eða í netfangið kennari(at)nemandi.is
"VALFRJÁLST UPPHAF": NÝJUNG! Þarft ekki að bíða til 18. des., getur hafið námið um leið og skráning er samþykkt
ATH! Námskeiðið er einnig haldið:
28. maí - "VALFRJÁLST UPPHAF": NÝJUNG! Þarft ekki að bíða til 28. maí, getur hafið námið um leið og skráning er samþykkt (ef skráning er eftir 22/1).
Hæfniviðmið
Aukin tölvufærni.
Þekking á helstu tölvuforritum, s.s. word og excel.
Aukin skilningur á internetinu, tölvupósti og upplýsingatækni.
Fyrirkomulag
Þátttakendur fá send námsgögn og vinna verkefni rafrænt. Námskeið stendur yfir í 10 vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu. Aðgangur að námsefni er opinn allt skólaárið. Nemendur sækja alla aðstoð við námið til kennara námskeiðsins í gegnum tölvupóst eða þjónustusíma 788 8805 sem er opinn 10-20 virka daga.Helstu upplýsingar
- Tími18. desember. Námskeiðið stendur yfir í 10 vikur.
- Lengd60 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
- StaðsetningVefnámskeið.
- TegundFjarnám
- Verð56.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámið hentar öllum sem vilja bæta almenna tölvufærni.
- Gott að vitaNámskeiðið hefst formlega 18. desember en þáttakendum stendur til boða "valfrjálst upphaf" - þ.e.a.s. hægt að hafa samband við kennarann og hefja leikinn um leið og skráning er samþykkt. Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Aðstoð með tölvupósti og í þjónustusíma kl. 10-20 virka daga.
- MatVerkefnaskil.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
|---|---|---|
| 18.12.2019 | Tölvuleikni - Windows stýrikerfið | Bjartmar Þór Hulduson |
| 22.12.2019 | Ritvinnsla (Word) | Bjartmar Þór Hulduson |
| 29.12.2019 | Töflureiknir (Excel) | Bjartmar Þór Hulduson |
| 05.01.2020 | Internetið og tölvupóstur | Bjartmar Þór Hulduson |
| 12.01.2020 | Upplýsingatækni | Bjartmar Þór Hulduson |